Donni og Kolbeinn Aron í ÍBV Anton Ingi Leifsson skrifar 24. maí 2018 23:15 Kolbeinn og Kristján Örn við undirskriftina. vísir/íbv facebook
Kristján Örn Kristjánsson og Kolbeinn Aron Arnarsson eru gengnir í raðir þrefaldra meistara ÍBV en þetta var tilkynnt á Facebook-síðu ÍBV í kvöld. Kristján Örn, eða Donni eins og hann er oftast kallaður, skoraði sjö mörk að meðaltali í leik fyrir Fjölni í vetur en Fjölnir féll úr deildinni. Hann skrifar undir tveggja ára samning. Hann var í fjórða sæti á lista HB Statz yfir heildareinkunn, bæði í vörn og sókn, en þar var hann jafn Selfyssingnum Hauki Þrastarsyni með 7,83 í einkunn. Í Eyjum leysir Donni af Agnar Smára Jónsson sem er að flytjast upp á fasta landið í nám. Hann er að ganga í raðir Vals samkvæmt heimildum. Kolbeinn Aron varði mark Aftureldingar í vetur ásamt Lárusi Helga Ólafssyni en þeir skiptu á milli sínum leikjum. Kolbeinn skrifar undir þriggja ára samning. Kolbeinn er Eyjamaður og þekkir hvern krók og kima í Eyjum en hann varð meistari með liðinu er liðið varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Allar líkur eru á því að það verði alveg nýtt markvarðarteymi í Eyjum á næstu leiktíð. Stephen Nielsen er genginn í raðir ÍR og allar líkur eru á því að Aron Rafn Eðvarðsson spili ekki með liðinu á næsta tímabili. Eins og Vísir greindi frá á dögunum er Fannar Þór Friðgeirsson einnig á leið til Eyja en samkvæmt heimildum Vísis hafa hann og ÍBV náð samkomulagi um að hann spili með deildar-, bikar- og Íslandsmeisturunuhttps://www.visir.is/g/2018180529617/fannar-og-donni-til-eyjam á næstu leiktíð.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira