„Þetta var nú ekki erfið ákvörðun“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. maí 2018 16:00 David Wagner var síðasti stjórinn sem mætti Arsene Wenger í stjóratíð Frakkans hjá Arsenal. Vísir/Getty
Stuðningsmenn Huddersfield Town fögnuðu vel þegar liðið hélt sér í ensku úrvalsdeildinni á dögunum og ekki mikið minna eftir fréttir dagsins. Knattspyrnustjórinn David Wagner hefur framlengt samning sinn um þrjú ár. Huddersfield Town endaði í 16. sæti í ensku úrvalsdeildinni í vetur á sínu fyrsta tímabili í langan tíma meðal þeirra bestu en liðið gylltryggði sæti sitt með því að sækja stig á Stamford Bridge. „Það var nú ekki erfið ákvörðun að framlengja samninginn minn,“ sagði David Wagner í viðtali við BBC. „Sambandið sem við Christoph og Andy eigum við stjórnaformanninn Dean Hoyle, restina af stjórninni, starfsmenn félagsins og stuðningsmennina er mjög sérstakt,“ sagði Wagner. Wagner in! Huddersfield Town boss David Wagner has signed a new deal with the Terriers. Full story: https://t.co/wLiKBDJPZCpic.twitter.com/SmXbbXN10x — BBC Sport (@BBCSport) May 30, 2018 „Við höfum afrekað ótrúlega hluti saman í þessi tvö og hálft ár og ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni,“ sagði Wagner. „Við eigum enn mikið verk fyrir höndum að aðlaga félagið okkar að ensku úrvalsdeildinni. Félagið og fólkið innan þess hefur metnaðinn, ástríðuna og hugarfarið til að takast á við það verkefni,“ sagði Wagner. Wagner settist í stjórastólinn á John Smith leikvanginum í nóvember 2015. Tólf mánuðum síðar var liðið komið upp í úrvalsdeildina. Hann hefur gert magnaða hluti með takmarkaðan leikmannahóp. Wagner er ekki eini Þjóðverjinn í mikilvægari stöðu hjá félaginu því fyrr í þessum mánuði tók Olaf Rebbe við sem íþróttastjóri. Þjóðverjarnir fá því það verkefni í sumar og styrkja liðið fyrir tímabil númer tvö sem er alltaf skeinuhætt.
Enski boltinn Mest lesið Fjölmiðlar keppast við að lítillækka landsliðið eftir tapið gegn Íslandi Fótbolti Uppgjör: England - Ísland 0-1 | Strákarnir okkar með frækinn sigur á Wembley Fótbolti Sjáðu markið sem tryggði Íslandi sigur gegn Englandi Fótbolti Jón Dagur: „Já þetta bara gerðist?“ Fótbolti „Allir tala eins og við séum að fara að valta yfir mótið og vinna það“ Fótbolti „Frábært að koma hingað á mitt annað heimili og skemma partýið“ Fótbolti Samfélagsmiðlar eftir sigurinn: Íslendingar kampakátir en Englendingar ekki lengur vongóðir fyrir EM Fótbolti Åge: Gott fyrir strákana Fótbolti Kroos mun einbeita sér að þjálfun og hlaðvarpshaldi eftir EM Fótbolti Stór fáni af Pétri dreginn upp í Stokkhólmi: „Farið til helvítis“ Fótbolti Fleiri fréttir Chelsea vann kapphlaupið um Adarabioyo Maðurinn sem skallaði Roy Keane sakfelldur fyrir líkamsárás Öll liðin nema eitt vildu halda VAR í ensku úrvalsdeildinni Leikmannasamtök ensku úrvalsdeildarinnar beita sér gegn eyðsluþaki Arteta vill fá leikmann sem skoraði gegn Íslandi Ætla að banna starfsfólki United að borða með leikmönnunum Sádagullið heillar De Bruyne: „Þú ert að tala um ótrúlegar upphæðir“ City fer í mál við ensku úrvalsdeildina: „Ógnarstjórn meirihlutans“ Helsti styrktaraðili Liverpool sakaður um tengsl við hryðjuverkasamtök Segir enska knattspyrnusambandið vilja dæma Paquetá í lífstíðarbann Steve Bruce orðinn þreyttur á atvinnuleysinu: „Leicester, þið vitið hvar þið finnið mig“ United og Liverpool berjast um miðvörð Sporting Hareide yngri orðinn yfirmaður íþróttamála hjá ensku C-deildarliði Styttist í að Ten Hag fái að vita hvað framtíðin ber í skauti sér Maresca tekinn við hjá Chelsea Ferguson hafi átt leynilegan fund í Lundúnum Fyrrverandi leikmaður Arsenal og Everton alvarlega veikur á spítala Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Sjá meira
Samfélagsmiðlar eftir sigurinn: Íslendingar kampakátir en Englendingar ekki lengur vongóðir fyrir EM Fótbolti
Samfélagsmiðlar eftir sigurinn: Íslendingar kampakátir en Englendingar ekki lengur vongóðir fyrir EM Fótbolti