Aguero afgreiddi Chelsea í leiknum um Samfélagsskjöldinn Anton Ingi Leifsson skrifar 5. ágúst 2018 16:00 Aguero fagnar fyrra marki sínu í dag. vísir/getty Manchester City vann 2-0 sigur á Chelsea í Samfélagsskildinum sem fór fram á Wembley í dag. Sergio Aguero skoraði bæði mörkin. Það voru ekki liðnar nema þrettán mínínútur er fyrsta markið kom. Aguero fékk þá nægan tíma rétt við vítateig Chelsea eftir sendingu Phil Foden og lagði boltann laglega í hornið. Þetta mark var það 200. hjá Aguero í öllum keppnum fyrir City. Hann er fyrsti maður City sem kemst í 200 marka klúbbinn. Ótrúlegur Argentínumaðurinn. City var sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum en sprækasti maður Chelsea var hinn sautján ára gamli Callum-Hudson Odoi. Hann spilaði á vinstri vængnum og átti nokkra góða spretti. Staðan 1-0 fyrir City í nokkuð tíðindalitlum fyrri hálfleik þar sem ekki var mikill hraði. Mikill hiti var í London og var tekið vatnspása í bæði fyrri og síðari hálfleik. Í síðari hálfleik hafði City enn meiri tök á leiknum og skapaði sér mun fleiri færi en bikarmeistararnir. Annað markið kom svo á 58. mínútu er Aguero slapp einn gegn Willy Caballero eftir sendingu Bernardo Silva. Það þurfti ekki að spurja sig tvisvar hvernig það endaði og City komið í 2-0. Aguero fékk tækifæri til þess að fullkomna síðar í leiknum en þá sá landi hans við. Lokatölur 2-0 sigur Chelsea. Úrvalsdeildin fer svo af stað í vikunni en fyrsti leikur Chelsea er gegn Huddersfield á útivelli á meðan City heimsækir Arsenal á Emirates.
Manchester City vann 2-0 sigur á Chelsea í Samfélagsskildinum sem fór fram á Wembley í dag. Sergio Aguero skoraði bæði mörkin. Það voru ekki liðnar nema þrettán mínínútur er fyrsta markið kom. Aguero fékk þá nægan tíma rétt við vítateig Chelsea eftir sendingu Phil Foden og lagði boltann laglega í hornið. Þetta mark var það 200. hjá Aguero í öllum keppnum fyrir City. Hann er fyrsti maður City sem kemst í 200 marka klúbbinn. Ótrúlegur Argentínumaðurinn. City var sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum en sprækasti maður Chelsea var hinn sautján ára gamli Callum-Hudson Odoi. Hann spilaði á vinstri vængnum og átti nokkra góða spretti. Staðan 1-0 fyrir City í nokkuð tíðindalitlum fyrri hálfleik þar sem ekki var mikill hraði. Mikill hiti var í London og var tekið vatnspása í bæði fyrri og síðari hálfleik. Í síðari hálfleik hafði City enn meiri tök á leiknum og skapaði sér mun fleiri færi en bikarmeistararnir. Annað markið kom svo á 58. mínútu er Aguero slapp einn gegn Willy Caballero eftir sendingu Bernardo Silva. Það þurfti ekki að spurja sig tvisvar hvernig það endaði og City komið í 2-0. Aguero fékk tækifæri til þess að fullkomna síðar í leiknum en þá sá landi hans við. Lokatölur 2-0 sigur Chelsea. Úrvalsdeildin fer svo af stað í vikunni en fyrsti leikur Chelsea er gegn Huddersfield á útivelli á meðan City heimsækir Arsenal á Emirates.
Fótbolti Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Sjá meira