Wilshere samdi við félagið sem hann hélt með þegar hann var lítill Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2018 14:45 Jack Wilshere er ánægður með nýja samninginn. Mynd/Twitter/@WestHamUtd „
Velkominn Jack,“ slá West Ham menn upp á twitter-síðu sinni í dag en Jack Wilshere hefur gengið frá þriggja ára samning við Lundúnafélagið. Það er búið að skrifa mikið um þessi félagsskipti í enskum miðlum á síðustu dögum og það er því ekki hægt að segja annað en þau hafi legið í loftinu. West Ham menn staðfestu samninginn loksins á samfélagsmiðlum sínum í dag.#WelcomeJackpic.twitter.com/GtAmF98ila — West Ham United (@WestHamUtd) July 9, 2018 Hinn 26 ára fyrrum leikmaður Arsenal segist kominn til félagsins sem hann hélt með þegar hann var ungur strákur. Jack Wilshere lék sinn fyrsta leik með Arsenal fyrir tíu árum en undanfarin ár hefur glímt við erfið og langvinn meiðsli. „Þetta er sérstakt fyrir mig. Margir vita að ég hef sérstök tengsl við þennan klúbb frá því að ég var yngri. Ég studdi West Ham þegar ég var lítill strákur og á góðar minningar frá því að mæta á Upton Park,“ sagði Jack Wilshere í viðtali við heimasíðu West Ham.Our new midfielder has arrived... #WelcomeJackpic.twitter.com/kPd7hm4YxZ — West Ham United (@WestHamUtd) July 9, 2018 „Mér líður mjög vel með þetta og auðvitað er fjölskylda mín og nokkrir vina minna stuðningsmenn West Ham og það eru því allir mjög spenntir yfir þessu,“ sagði Wilshere. Wilshere hoppar síðan upp í flugvél sem fer með hann til Sviss þar sem West Ham liðið er við æfingar undir stjórn nýja stjórans Manuel Pellegrini. Wilshere lék 197 leiki fyrir aðallið Arsenal og varð bikarmeistari með liðinu 2014 og 2015. Hann var á láni hjá Bournemouth tímabilið 2016-17 en kom aftur til Arsenal á síðasta tímabili og lék alls 38 leiki á leiktíðinni. Það nægði honum þó ekki til að vinna sér sæti í enska landsliðinu á nýjan leik.
Enski boltinn Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjá meira