Giedrius Morkunas mun yfirgefa Hauka í vor en þessi snjalli markvörður hefur spilað með Hafnarfjarðarliðinu frá árinu 2012.
Giedrius Morkunas hefur gert samning við finnska liðið Riihimäki Cocks en það lið þjálfar einmitt landi hans Gintaras Savukynas sem lék á sínum tíma hér heima á Íslandi.
Þorgeir Haraldsson, formaður Knattspyrnudeildar Hauka, staðfesti þetta við íþróttadeild 365 í kvöld.
Haukar hafa samið við landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Pál Gústavsson sem mun koma til félagsins í sumar. Hjá liðinu er einnig hinn stórefnilegi markvörður Grétar Ari Guðjónsson. Það mátti því búast við að Giedrius Morkunas væri að hugsa sér til hreyfings.
Giedrius Morkunas hefur orðið Íslandsmeistari með Haukum undanfarin tvö tímabil en hann hefur einnið orðið bikarmeistari með liðinu.
Riihimäki Cocks hefur orðið finnskur meistari undanfarin fjögur ár og varð bikarmeistari þriðja árið í röð á dögunum. Tveir af markvörðum liðsins á þessu tímabili kom frá Rússlandi en sá þriðji er heimamaður.
Morkunas fer frá Haukum og til Cocks í Finnlandi
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið

Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika
Íslenski boltinn




Halldór: Sundur spiluðum Fram
Fótbolti



Uppgjörið: Valur-KR 6-1 | Valsmenn rassskelltu KR-inga
Íslenski boltinn

