„Skiptir engu þó svo að þær væru með Michael Jordan í liðinu“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. febrúar 2017 15:45 Erna og Williams með bikarinn. Vísir/Eyþór
Keflavík og Haukar eigast við í síðari undanúrslitaleik Maltbikarkeppni kvenna í Laugardalshöllinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20.00. „Við þurfum bara að nálgast þennan leik sem eitt sterkt lið. Við erum með ungt lið en ef við keyrum öll á sömu blaðsíðunni þá ættum við að vera í góðum málum,“ segir Nashika Williams en Haukar eru í næstneðsta sæti Domino's-deildarinnar. Keflavík er í þriðja sætinu, 20 stigum á undan Haukum. Þó svo að það sé mikill munur á liðunum segir hún að það sé hægt fyrir Hauka að vinna þennan leik, þrátt fyrir að lið Hauka sé að stórum hluta ungt. „Þær hafa spilað vel án mín og af miklum krafti. Við ætlum að reyna að vera skynsamari en Keflavík og þannig er hægt að vinna þær, þó svo að þær séu með besta liðið og Michael Jordan í liðinu. Við ætlum að einbeita að okkur sjálfum.“ Keflavík er fyrirfram talin sigurstranglegri aðilinn en Erna Hákonardóttir segir að Keflvíkingar geti ekki leyft sér að nálgast leikinn á þann máta. „Það hefur verið góður stígandi í liði Hauka sem eru með nýjan útlending. Við þurfum að spila vel til að komast í úrslitaleikinn,“ segir Erna. Keflavík er með sterka vörn og Erna segir að það verði lagt upp með að spila góðan varnarleik eins og alltaf. „Þá kemur sóknin að sjálfu sér. Ef við spilum góða vörn þá ættum við að komast langt.“ „Við verðum að mæta til leiks með hausinn í lagi. Við getum ekki mætt og ætlast til að vinna, við verðum að gera okkar besta og spila vel.“
Dominos-deild kvenna Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Fótbolti Langar að taka pásu frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Sjá meira