Eimskip kaupir Mareco á tvo milljarða 24. janúar 2017 11:38 Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Vísir/Stefán
Eimskip hefur keypt 80 prósenta hlut í frystiflutningsmiðlunarfyrirtækinu Mareco N.V. í Belgíu á jafnvirði um tveggja milljarða króna. Samkvæmt tilkynningu Eimskips nemur ársvelta Mareco um 60 milljónum evra eða um 7,3 milljörðum króna. Mareco var var stofnað árið 2002 og eru höfuðstöðvar þess í Antwerpen í Belgíu. Núverandi stjórnendateymi mun áfram eiga 20 prósenta hlut í fyrirtækinu og stýra rekstri þess. „Mareco leggur áherslu á frystiflutninga, einkum á útflutning víðs vegar að úr heiminum til Vestur-, Mið- og Suður-Afríku. Helstu vörutegundir eru sjávarafurðir, kjúklingur, svínakjöt og nautakjöt. Ársvelta fyrirtækisins nemur um 60 milljónum evra eða um 7,3 milljörðum króna, EBITDA hlutfall er á bilinu 5-6 prósent og nemur flutt magn um 32 þúsund gámaeiningum á ári,“ segir í tilkynningu Eimskips. Áætluð fjárfesting nemur 16,6 milljónum evra og eru kaupin fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Mareco verður hluti af samstæðu Eimskips frá og með byrjun þessa árs. „Í tengslum við fjárfestingarverkefni Eimskips hefur félagið samið við Íslandsbanka um lánalínu til 18 mánaða að fjárhæð 47 milljónir evra. Vegna kaupanna á Mareco hafa 7 milljónir evra verið dregnar á línuna,“ segir í tilkynningunni. „Við erum ánægð með að Mareco er nú orðið hluti af samstæðu Eimskips og fyrirtækið mun styrkja frekar frystiflutningsþjónustu okkar með útvíkkun á þjónustuframboði Eimskips, bæði hvað varðar nýja vöruflokka og ný landssvæði. Breytingin mun einnig auka fjölbreytileika okkar og dýrmæt reynsla stjórnenda og starfsmanna Mareco mun hjálpa til við að styrkja okkar alþjóðlegu flutningsmiðlunarþjónustu,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
Mest lesið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Neytendur Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Viðskipti innlent „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Sjá meira