Bein útsending frá blaðamannafundi Bjarna og Benedikts Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. mars 2017 13:00 Vísir/Anton
Vísir mun sýna beint frá blaðamannafundi Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra, og Benedikt Jóhannesson, fjármálaharáðherra í Ráðherrabústaðnum klukkan 14 í dag. Blaðamannafundurinn var boðaður í dag. Reiknað er með að á fundinum verði tillögur um aðgerðir í átt að fullu afnámi fjármagnshafta kynntar almenningi og fjölmiðlum. Klára þarf að ganga frá þeim aðgerðum sem nauðsynlegar eru áður en markaðir opna í fyrramálið.Gjaldeyrisviðskipti hafa verið háð takmörkunum frá hruni bankakerfisins haustið 2008Hinn 28. nóvember 2008 voru settar reglur um gjaldeyrismál, sem heimilaðar voru samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum um gjaldeyrismál. Með setningu reglnanna var öllum höftum á gjaldeyrisviðskiptum vegna vöru og þjónustuviðskipta aflétt, en teknar upp strangari takmarkanir á fjármagnshreyfingar á milli landa og gjaldeyrisviðskipti sem þeim tengjast. Hinn 21. október 2016 var með lagabreytingu stigið skref til losunar á takmörkunum á fjármagnsviðskipti og var þá íslenskum fyrirtækjum gert kleyft að fjárfesta nær óheft í útlöndum. Frá áramótum hefur almenningur getað fjárfest í erlendum hlutabréfum, millifært fé á reikninga erlendis og tekið út gjaldeyri, án þess að framvísa farseðli til útlanda. Hundrað milljón króna þak hefur verið á þessum viðskiptum. Reiknað er með að í dag muni verða gengið lengra í að afnema þessi höft og mögulega verða þau afnumin að fullu.Sjá nánar: Gjaldeyrishöft afnumin að fullu frá og með þriðjudeginum
Tengdar fréttir Forsætisráðherra og fjármálaráðherra boða til blaðamannafundar Á blaðamannafundinum verða aðgerðir vegna afmáms hafta að fullu kynntar almenningi og fjölmiðlum. 12. mars 2017 10:15 Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir í gjaldeyrismálum á næstunni Ríkisstjórnin mun kynna aðgerðir til viðnáms við stöðugri styrkingu krónunnar í þessum mánuði og fjármálaráðherra væntir þess að gjaldeyrishöft verði afnumin gagnvart almenningi og fyrirtækjum innan nokkurra vikna eða mánuða. 9. mars 2017 18:55 Afnám hafta á almenning gæti orðið á næstu vikum Afnám gjaldeyrishafta á almenning og fyrirtæki í landinu gæti orðið á næstu vikum eða mánuðum. Þetta kom fram í svari Benedikts Jóhannessonar, fjármálaráðherra, við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. 9. mars 2017 12:18 Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Sjá meira
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra boða til blaðamannafundar Á blaðamannafundinum verða aðgerðir vegna afmáms hafta að fullu kynntar almenningi og fjölmiðlum. 12. mars 2017 10:15
Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir í gjaldeyrismálum á næstunni Ríkisstjórnin mun kynna aðgerðir til viðnáms við stöðugri styrkingu krónunnar í þessum mánuði og fjármálaráðherra væntir þess að gjaldeyrishöft verði afnumin gagnvart almenningi og fyrirtækjum innan nokkurra vikna eða mánuða. 9. mars 2017 18:55
Afnám hafta á almenning gæti orðið á næstu vikum Afnám gjaldeyrishafta á almenning og fyrirtæki í landinu gæti orðið á næstu vikum eða mánuðum. Þetta kom fram í svari Benedikts Jóhannessonar, fjármálaráðherra, við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. 9. mars 2017 12:18