Hundruð drengja beittir ofbeldi í áratugi í kórskóla Samúel Karl Ólason skrifar 18. júlí 2017 15:54 Fórnarlömbin segja veruna í Regensburger Domspatzen kórskólanumnum hafa verið eins og að vera í „fangelsi, helvíti og í útrýmingarbúðum“. Vísir/AFP
Minnst 547 ungir drengir voru beittir líkamlegu ofbeldi og misnotaðir kynferðislega um sextíu ára tímabili í kórskóla í Þýskalandi. Í nýrri rannsóknarskýrslu eru 49 meðlimir kaþólsku kirkjunnar sakaðir um að beita drengi ofbeldi og þar af níu sakaðir um kynferðislegt ofbeldi. Brotin eru sögð hafa átt sér stað á árunum 1945 og fram á tíunda áratug síðustu aldar. Fórnarlömbin segja veruna í Regensburger Domspatzen kórskólanumnum hafa verið eins og að vera í „fangelsi, helvíti og í útrýmingarbúðum“. Ólíklegt er að nokkur verði ákærður vegna hinna meintu brota sökum þess hve langt er síðan þau eru framin. Hins vegar hafa rannsakendur borið kennsl á þá. Lögmaðurinn Ulrich Weber, sem stýrði rannsóknarnefndinni sem skoðaði málið, segir þó að ekki hafi verið hægt að ræða við fjölda fyrrverandi nemenda skólans og að hann teldi að í raun hefðu um 700 drengir orðið fyrir ofbeldi, samkvæmt frétt BBC.Núverandi forsvarsmenn skólans hafa ekki tjáð sig um þessar ásakanir. Weber sagði þó að hægt væri að kenna Georg Ratzinger um að hafa ekki gripið inn í og litið fram hjá ofbeldinu. Ratzinger, sem er 93 ára gamall, stýrði skólanum frá 1964 til 1994. Hann er eldri bróðir Benedikts páfa, fyrrverandi. Sjálfur neitar Ratzinger því að hann hafi haft nokkra vitneskju um ofbeldið og segir það „aldrei hafa verið rætt“.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Sjá meira