Þriðji æðsti maður Vatíkansins ákærður fyrir kynferðisbrot Samúel Karl Ólason skrifar 29. júní 2017 06:52 George Pell, kardínáli og fjármálaráðherra Vatíkansins. Vísir/AFP
Lögreglan í Ástralíu hefur ákært kardínálann George Pell fyrir margvísleg kynferðisbrot. Hann er í raun fjármálaráðherra Vatíkansins og er talinn vera þriðji valdamesti maður kaþólsku kirkjunnar. Þá er hann náinn ráðgjafi Frans páfa, sem hefur heitið hörðum aðgerðum gegn kynferðisbrotum presta. Nánar tiltekið hefur Pell verið ákærður í Viktoríuhéraði í Ástralíu, þar sem hann var prestur á áttunda áratuginum. Lögreglan hefur ekki viljað segja hvenær hin meintu brot voru framin, hve mörg fórnarlömbin eru, né hvernig brot um sé að ræða. Ákveðið verður í næstu viku hvort frekari upplýsingar verði veittar Rannsókn málsins hefur staðið yfir í nokkurn tíma og flugu lögregluþjónar til Rómar í fyrra til að ræða við Pell. Hann hefur ávallt neitað að hafa brotið af sér. Pell hefur verið skipað að mæta fyrir dómara í Ástralíu þann 18. júlí næstkomandi. Hann hefur neitað ásökununum og í tilkynningu frá talsmanni hans segist Pell hlakka til þess að hreinsa nafn sitt í Ástralíu. Á blaðamannafundi Pell nú í morgun las talsmaður hans upp yfirlýsingu þar sem hann sagði Pell hafa margsinnis í gegnum árin fordæmt öll kynferðisbrot gegn börnum.ABC í Ástralíu segir hins vegar að hann hafi margsinnis verið gagnrýndur á undanförnum áratugum fyrir meðhöndlun sína á kvörtunum gegn öðrum prestum. Sjálfur segir Pell að hann sé fórnarlamb ófrægingarherferðar. Hann sagði rannsókn hafa staðið yfir í tvö ár og á þeim tíma hefðu lekar til fjölmiðla verið umfangsmiklir. Þá sagðist Pell hafa orðið fyrir mannorðsmorði og að hann væri ánægður með að fá loksins tækifæri til að verja sig.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Fleiri fréttir Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Sjá meira