Innlent

John Snorri varð undir eftir langa baráttu við Arion banka

Daníel Freyr Birkisson skrifar
John Snorri Sigurjónsson varð fyrstur Íslendinga upp á K2.
John Snorri Sigurjónsson varð fyrstur Íslendinga upp á K2. Mynd/Kári Schram
Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson hefur verið dæmdur til þess að greiða Arion banka 635.363 kr. ásamt dráttarvöxtum fyrir að hafa ekki staðið í skilum á afborgunum á láni sem tekið var í Sparisjóði Ólafsfjarðar árið 2009. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Var hann einnig dæmdur til þess að greiða 500.000 kr. í málskostnað.

Krafa Arion banka byggði á afborgunarsamningi láns upp á tæplega 2,5 milljónir króna. Skuldina, ásamt vöxtum, átti að greiða með tólf gjalddögum. Segir í dómnum að staðið hafi verið við níu afborganir en lánið verið gjaldfellt í nóvember 2009. Fór bankinn því fram á eftirstöðvar skuldarinnar, sem nam sem fyrr segir 635.363 kr. auk málskostnaðar upp á 500.000 kr.

Sýknukrafa Johns Snorra byggði á að krafa Arion banka væri fyrnd og vísaði hann til laga um fyrningu kröfuréttinda sem kveður á um að almennur fyrningartími sé fjögur ár. Einnig segir hann að honum hafi ekki verið kynnt efni samningsins þegar lánið var tekið.

Vísuðu til undirskriftar um reglur og skilmála

Arion banki vísaði til laga sem benda á að fyrningartími peningalána sé tíu ár og vísaði til undirritaðrar umsóknar Johns Snorra þar sem hann staðfestir að hafa kynnt sér reglur og skilmála Sparisjóðs Ólafsfjarðar.

Var hann dæmdur til þess að greiða eftirstöðvar lánsins auk dráttarvaxta auk málskostnaðar sem fyrr segir. Frá og með 1. janúar 2012 tók Arion banki við öllum réttindum og skyldum Sparisjóðs Ólafsfjarðar vegna samruna félaganna.

Í samtali við fréttastofu Vísis segist John Snorri ekki ætla að áfrýja dómnum til Lands- eða Hæstaréttar.

John Snorri vann það þrekvirki að klífa næsthæsta fjall heims, K2, á árinu en það er 8.611 metrar. Ganga Johns Snorra var hluti af áheitasöfnun fyrir Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítalans.​

 


Tengdar fréttir

John Snorri komst á tind K3 í nótt

Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson komst á tind fjallsins Broad Peak, sem jafnan gengur undir nafninu K3, klukkan fjögur í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×