Óhræddur Kristján mætir Íslandi með þrjá nýliða í hópnum á EM Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. desember 2017 16:30 Kristján Andrésson mætti Ísland tvisvar í Höllinni í síðasta mánuði. vísir
Kristján Andrésson, landsliðsþjálfari Svíþjóðar í handbolta, er ekkert að bíða með það að velja hópinn sem fer á EM í Króatíu um miðjan janúar á næsta ári. Hópinn tilkynnti hann í dag. Kristján hefur verið algjörlega óhræddur við að stokka upp hópinn og koma inn með nýja menn síðan hann tók við og því heldur hann áfram. Hann fer með þrjá nýliða á EM að þessu sinni. Hornamaðurinn Jerry Tollbring hjá Rhein-Neckar Löwen, leikstjórnandinn Linus Arnesson hjá Bergischer og vinstri skyttan Philip Henningsson hjá Kristianstad eru allir í hópnum og munu spila á sínu fyrsta stórmóti. Þeir eiga allir fjóra leiki að baki fyrir sænska landsliðið. Allir þrír eiga það sameiginlegt að vera samherjar íslenskra landsliðsmanna en Guðjón Valur Sigurðsson spilar með Löwen, Arnór Þór Gunnarsson með Bergischer og þeir Arnar Freyr Arnarsson og Ólafur Guðmundsson eru leikmenn Kristianstad. Kristján verður aftur á móti án línumannsins frábæra Andreas Nilsson hjá Veszprém sem var að eignast barn og hefur tekið þá ákvörðun að eyða janúarfríinu með kærustu sinni og nýja barninu. „Þetta eru þeir 16 sem ég tel að geti unnið mótið fyrir Svíþjóð,“ segir Kristján Andrésson sem mætir Íslandi í fyrsta leik tólfta janúar í Split.Här är de 16 herrar som ska representera Sverige i EM i Kroatien i januari: pic.twitter.com/ampwb1HsB8— Handbollslandslaget (@hlandslaget) December 4, 2017
EM 2018 í handbolta Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira