Birting samtalsins ekki borin undir Geir Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. nóvember 2017 16:11 Geir segir ólíðandi fyrir forsætisráðherra, hver sem hann er, að samtöl hans við embættismenn ríkisins séu hljóðrituð. Vísir/Vilhelm
Birting á afriti af samtali Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag var ekki borin undir Geir. Þetta segir hann í svari til Fréttablaðsins og Vísis. Í blaðinu var birt afrit af samtali sem þeir Davíð, sem þá var seðlabankastjóri, og Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, áttu þegar ákvörðun var tekin um að veita Kaupþingi 500 milljóna evra lán (sem jafngilti þá 84 milljörðum íslenskra króna) með veði i danska bankanum FIH. Ákvörðunin var tekin sama dag og neyðarlögin voru samþykkt hinn 6. október 2008. „Innihald samtalsins ber það með sér að það er ekki vegna efnis þess sem ég hef verið andvígur birtingu þess heldur vegna þess að það er ólíðandi fyrir forsætisráðherra, hver sem hann er, að samtöl hans við embættismenn ríkisins séu hljóðrituð án hans vitundar til opinberrar birtingar síðar. Fróðlegt gæti verið fyrir fjölmiðla að velta fyrir sér hvernig forverar mínir í embætti forsætisráðherra hefðu brugðist við slíku,“ segir Geir í svarinu. Geir segist hafa svarað öllum efnisatriðum varðandi þetta samtal margsinnis. Þar vísar hann meðal annars í bréf sitt til Kastljóss Ríkissjónvarpsins 13. október 2016.
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Sjá meira