Forstjóraskipti hjá Mentor 1. nóvember 2017 17:10 Kristín Pétursdóttir, fráfarandi forstjóri Mentor. Vísir
Niclas Walter hefur verið ráðinn nýr forstjóri Mentor. Hann tekur við starfinu af Kristínu Pétursdóttur sem hefur leitt félagið frá byrjun árs 2016 en lætur nú af störfum að eigin ósk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mentor. Þar segir að Niclas Walter hafi starfað hjá Mentor frá 2016 og verið yfirmaður dótturfélaga þess í Svíþjóð, Þýskalandi og Sviss en þessir markaðir afla um 75% tekna félagsins. Niclas hefur starfað sem stjórnandi á alþjóðlegum hugbúnaðarmarkaði í þrjátíu ár. Hann hefur MSc. gráðu í rafmagnsverkfræði ásamt MBA gráðu frá IMD Lausanne í Sviss. Eftirfarandi er haft eftir Niclas Walter í tilkynningunni: „Mentor einsetur sér nú að ná að vaxa af krafti. Ég hef í gegnum störf mín kynnst vel starfsfólki félagsins sem starfar í fimm löndum og veit því hvaða þekkingu og getu það hefur. Ég kem til með að byggja á þeim styrk og veit að hann er umtalsverður. Stjórnendateymi félagsins er sterkt og vinnur vel saman og getum við því einbeitt okkur strax að því verkefni að ná fram vexti.” Í tilkynningunni er jafnframt eftirfarandi haft eftir Kristínu Pétursdóttur: „Verkefni mitt hjá Mentor fólst í ákveðinni endurskipulagningu og styrkingu á starfseminni og hafa miklar breytingar verið gerðar bæði stefnu og skipulagi félagsins auk þess sem stjórnendateymið hefur verið styrkt verulega. Fyrirtækið er núna vel í stakk búið til að taka áframhaldandi skref í átt að frekari vexti. Ég tel að á þessum tímapunkti sé rétt fyrir mig að snúa mér að nýjum verkefnum. Tíminn hjá Mentor hefur verið frábær og ég óska félaginu alls hins besta í framtíðinni.” Þakkar stjórn Mentor Kristínu vel unnin störf og býður um leið Niclas Walter velkominn til starfa.
Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fleiri fréttir „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Súperdósin snýr aftur Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW GameStop vill kaupa eBay Sjá meira