Króatar í frábærum málum eftir stórsigur á Grikkjum á Maksimir | Sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Króatíska fótboltalandsliðið er komið með annan fótinn inn á HM í Rússlandi í sumar eftir 4-1 sigur á Grikkjum í kvöld í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2018.

Leikurinn í kvöld fór fram á Maksimir-leikvanginum í Zagreb en seinni leikurinn verður síðan í Grikklandi.

Króatarnir eru greinilega búnir að hrista af sér vonbrigðin eftir að hafa misst fyrsta sæti riðilsins til okkar Íslendinga. Þeir fóru inn á HM í Brasilíu fyrir fjórum árum eftir sigur á Íslandi í umspili og ætla nú að endurtaka leikinn á móti Grikkjum.

Króatar léku án framherjans Mario Mandzukic en það kom þó ekki í veg fyrir að þeir skoruðu fjögur mörk. Mandzukic er tognaður aftan í læri.

Luka Modric kom Króatíu í 1-0 strax á 13. mínútu með marki úr vítaspyrnu sem Nikola Kalinic fiskaði.

Nikola Kalinic skoraði síðan sjálfur sex mínútum síðar og kom Króatíu í 2-0. Skoraði þá af stuttu færi eftir sendingu Ivan Strinic.

Sokratis náði að minnka muninn í 2-1 á 30. mínútu með skalla og Grikkir voru því búnir að ná inn mikilvægu útivallarmarki.

Þremur mínútum síðar var hinsvegar Ivan Perisic búinn að koma Króatíu aftur tveimur mörkum yfir, 3-1.

Króatar fengu síðan draumabyrjun í seinni hálfleik þegar Andrej Kramaric skoraði á 49. mínútu og kom Króatíu í 4-1.

Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum í spilaranum hér fyrir ofan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira