Dagný studdi „Gnúp-þjóðina“ til afar óvænts sigurs á Selfossi Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. október 2017 08:30 Dagný Brynjarsdóttir með Tómasi Steindórssyni, fyrirliða Gnúp-þjóðarinnar. mynd/Gnúpverjar
Gnúpverjar, nýliðar í 1. deild karla í körfubolta, eru heldur betur að koma á óvart við upphaf leiktíðar en þetta áhugaverða lið, sem var spáð neðsta sæti deildarinnar, vann sinn annan leik í röð í gærkvöldi. Það gott betur en það heldur vann það nokkuð sannfærandi útisigur á FSu sem var spáð þriðja sæti fyrir tímabilið, 96-87. Þetta er annar sigur liðsins í röð en í síðustu umferð lögðu Gnúpverjar Skagamenn, 83-80. Gnúpverjar er meira en bara lið, þetta er lífstíll, eða það er allavega eitt mottó liðsins. Enginn leikmaður fær greitt nema Bandaríkjamaðurinn Everage Lee Richardson sem skoraði 47 stig í gær. Aðrir eru í þessu af hugsjón. Liðið er það besta í markaðssetningu í 1. deildinni og mögulega af öllum körfuboltaliðum á Íslandi en fyrir leiktíðina voru seldar derhúfur sem gilda sem ársmiðar á leiki liðsins og þá er liðið byrjað með sjónvarpsþátt á netinu. Leikurinn í gær var sannkallaður suðurlandsslagur og í Iðu á Selfossi var drottning suðurlandsins mætt, Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. Dagný skartaði Gnúpverja, eða Gnúp-þjóðar derhúfu, og fékk mynd af sér með Tómasi Steindórssyni, fyrirliða Gnúpverja, eftir leik. Sé allt satt og rétt sem kemur fram í leikskýrslu Gnúpverja er það uppáhaldsleikmaður hennar í liðinu. Gnúpverjar mæta næst ósigruðu liði Skallagríms 2. nóvember í Kórnum klukkan 20.30 og verður fróðlegt að sjá hvort ævintýrið hjá Gnúp-þjóðinni haldi áfram.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira