Fyrsta skóflustungan að nýju Kia húsi Finnur Thorlacius skrifar 5. október 2017 09:30 Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, með skófluna á lofti en 15 starfsmenn Öskju tóku fyrstu skóflustunguna að nýja Kia húsinu.
Fyrsta skóflustungann var tekin á dögunum að nýju Kia húsi að Krókhálsi 13. Húsið verður rúmlega 3 þúsund fermetrar að stærð á tveimur hæðum og verður byggt við hliðina á núverandi höfuðstöðvum Öskju að Krókhálsi 11. Áætluð verklok við byggingu Kia hússins eru um mitt ár 2018. ,,Þetta er stórt og ánægjulegt skref fyrir okkur að að taka fyrstu skóflustunguna að nýju og glæsilegu húsi fyrir Kia bíla. Hingað til hafa Kia og Mercedes-Benz bílar verið saman í höfuðstöðvum Öskju. Kia mun flytja alfarið í nýja húsið en Mercedes-Benz verður áfram staðsett í höfuðstöðvunum. Þar verða Mercedes-Benz bílar eingöngu til sýnis eftir að nýja húsið verður tekið í notkun. Þetta mun stórbæta aðstöðuna og þjónustuna fyrir viðskiptavini og starfsmenn Öskju. Við munum hafa tvo stóra sýningarsali og getum sýnt fleiri Kia og Mercedes-Benz bíla í aðskildum húsum. Þetta er orðið mjög tímabært hjá okkur enda fyrirtækið stækkað mikið og árangur beggja okkar vörumerkja hefur verið góður," segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju. Á fyrstu hæð Kia hússins verður m.a. 800 fermetra lager, verkstæði með 18 vinnustöðvum og öll nauðsynleg tæknirými. Á annarri hæð verður sýningarsalur, sala og afgreiðsla varahluta ásamt verkstæðismóttöku og biðstofu viðskiptavina. Arkitekastofan THG arkitektar sáu um að teikna og hanna húsið og verkefnastýring framkvæmda er í höndum Eflu. Höfuðstöðvar Öskju að Krókhálsi 11 eru um 5.500 fermetrar að stærð og þegar nýja húsið verður tekið í notkun mun Askja hafa yfir að ráða rúmlega 8.500 fermetra húsnæði fyrir Kia og Mercedes-Benz. Hjá félaginu starfa um 120 manns.Nýja Kia húsið rúmlega 3 þúsund fermetrar að stærð á tveimur hæðum og verður byggt við hliðina á núverandi höfuðstöðvum Öskju að Krókhálsi 11.
Mest lesið Davíð Oddsson er látinn Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Innlent Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Erlent