Handbolti

Kjóstu leikmenn og tilþrif mánaðarins í Olís-deildunum

vísir
Vísir stendur fyrir kosningu á besta leikmanni Olís-deild karla og kvenna í september en tilnefningar voru kynntar í handboltaþættinum Seinni bylgjan á Stöð 2 Sport HD í gærkvöldi.

Björgvin Páll Gústavsson og Daníel Þór Ingason, Haukum, koma til greina hjá körlunum sem og Elvar Örn Jónsson, Selfossi og Ásbjörn Friðriksson, FH.

Hjá konunum eru það Guðrún Ósk Maríasdóttir, Fram, Diana Satkauskaite, Val, Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi, og Karólína Bæhrenz úr ÍBV.

Verðlaunin eru ekki af verri endanum en leikmaður mánaðarins hjá körlunum og konunum fær glæsilega humarveislu í boði Fiskikóngsins og bensínúttekt hjá Olís.

Einnig er hægt að velja tilþrif mánaðarins en allt þetta má sjá hér að neðan og einnig er hægt að taka þar þátt í kosningunum.

Leikmaður mánaðarins í Olís-deild karla?
Leikmaður mánaðarins í Olís-deild kvenna?
Tilþrif mánaðarins?



Fleiri fréttir

Sjá meira


×