PSG niðurlægði Bæjara

Tómas Þór Þórðarson skrifar
PSG lítur vel út.
PSG lítur vel út. vísir/getty
Paris Saint-Germain byrjar Meistaradeildina í ár afar sannfærandi en eftir 5-0 sigur á Celtic í fyrstu umferðinni pakkaði liðið Þýskalandsmeisturum Bayern München í kvöld, 3-0.

Brasilíski bakvörðurinn Dani Alves kom PSG á bragðið eftir tæpar tvær mínútur og Úrúgvæinn Edinson Cavani tvöfaldaði forskot Frakkanna á 31. mínútu, 2-0.

Það var svo annar brasilískur töframaður, Neymar, sem innsiglaði 3-0 sigur Parísarliðsins með þriðja markinu á 63. mínútu en PSG var miklu betri aðilinn í kvöld.

PSG er efst í B-riðlinum með sex stig en Bayern og Celtic eru með þrjú stig. Celtic gerði góða ferð til Belgíu og vann Anderlecht, 3-0, í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira