Formúla 1

Bílskúrinn: Heimaskítsmát Mercedes á Monza

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton fagnar eftir óaðfinnanlegan akstur í keppninni á Monza.
Hamilton fagnar eftir óaðfinnanlegan akstur í keppninni á Monza. Vísir/Getty
Lewis Hamilton tók forystuna í heimsmeistarakeppni ökumanna á meðan heimamenn í Ferrari voru mát á Monza.

Heimaskítsmát Mercedes, staðan í heimsmeistaramótunum, meintur skilnaður McLaren og Honda, kristalkúlan verður skoðuð upp á framhaldið og ökumaður keppninar valinn. Allt þetta í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Heimaskítsmát Mercedes

Mercedes kom, sá og sigraði á Monza, í bakgarði ítalska stórveldisins Ferrari. Sergio Marchionne, forseti Ferrari kallaði helgina og frammistöðu liðs síns í keppninni vandræðalega. Það er líklega ágætis lýsing og býsna nákvæm.

Ferrari hefur náð gríðarlegum framförum í samanburði við Mercedes frá því í fyrra. Hingað til hefur baráttan verið nokkuð jöfn á tímabilinu og á köflum afar spennandi. Það er ekki nema vika síðan keppnin á Spa í Belgíu fór fram þar sem Hamilton og Vettel háðu einkar spennandi hildi. Hvað gerðist á þessari viku? Ekki mikið, þó er vert að nefna að aflmunur á milli Ferrari og Mercedes vélarinnar var sorglega augljós á Monza um helgina.

Ferrari menn áttu einfaldlega ekki svar á heimavelli við ógnarsterku liði Mercedes. Það var léttur 2014 eða 2015 keimur af keppninni. Það var einvhernveginn enginn annar en Mercedes ökumaður að fara að vinna hana eftir tíamtökuna.

Næsta keppni í Singapúr ætti að vera vænlegri veiðilenda fyrir Ferrari. Brautin er öllu þrengri og tæknilega flóknari en Monza og það verður spennandi að sjá hvernig staðan verður á liðunum þá.

Getur Vettel raunverulega ógnað Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitilinn?Vísir/Getty
Horfurnar í heimsmeistaramótinu

Horfur Ferrari í þeim sjö keppnum sem eru eftir eru ekki góðar ef marka má úrslit þeirra á síðasta ári. Mercedes vann allar nema þá malasísku, sem Daniel Ricciardo vann á Red Bull bílnum.

Það er þó nokkuð ósangjarnt gagnvart þeirri þróun sem hefur átt sér stað að áætla að keppnirnar fari eins og þær fóru í fyrra og allt getur gerst í Formúlu 1. Það er þó ljóst að Ferrari hefur á brattan að sækja og þarf að gyrða sig í brók ef titilbaráttan á að halda áfram fram til loka tímabils.

Munurinn er núna þrjú stig í heimsmeistarakeppni ökumanna, Hamilton í vil gegn Vettel sem er í öðru sæti. Munurinn á Mercedes og Ferrari er hins vegar 62 stig sem er býsna mikið. Nú þegar níu ár eru að verða liðin frá síðasta titli Ferrari í Formúlu 1 er ljóst að liðið þarf að rífa sig upp úr lægð ef það ætlar ekki að eiga titillausan áratug. Liðið vann síðast titil bílasmiða árið 2008.

Hvorugur McLaren-Honda manna gat kláraði keppnina um helgina.Vísir/Getty
Endalok McLaren-Honda?

Skilnaður McLaren og Honda virðist óhjákvæmilegur ef marka má orðróm sem er á kreiki. Fernando Alonso, annar ökumanna McLaren-Honda liðsins hefur sett liðinu afarkosti, hann heldur áfram ef það verður ekki Honda vél í bílnum. Hvorugur bíllinn komst í mark á Ítalíu.

Nú er svo komið að McLaren hefur leitað á náðir Renault um vélar fyrir næsta ár. Fundir vegna þessa voru í gangi um helgina á Monza brautinni. Slík niðurstaða gæti leitt til brotthvarfs Honda úr mótaröðinni, óvíst er þó hvort japanski risinn vill hverfa brott á svo neikvæðum nótum.

Ein lausnin væri að Toro Rosso, systurlið Red Bull fengi Honda vélar í staðinn fyrir Renault og McLaren tæki Renault vélarnar sem til stóð að skaffa Toro Rosso.

Zak Brown, liðsstjóri McLaren segir tilkynningu væntanlega innan tveggja vikna frá liðinu. Hún mun skera úr um hvaða vélar liðið mun nota í framtíðinni. Alonso segir að hann muni ákveða framtíð sína áður en september rennur sitt skeið og hann muni tilkynna ákvörðun sína fljótlega.

Verður Bottas skósveinn Hamilton það sem eftir er af tímabilinu?Vísir/Getty
Kíkt í kristalkúluna

Ferrari mun líklega slá frá sér í Singapúr, Japan og Brasilíu, að mati blaðamanns. Það verður því spenna fram á síðustu keppni. Ástæðan er sú að tæknilegri brautir henta Ferrari bílnum betur, að því er virðist vera. Í Mónakó og Ungverjalandi átti Mercedes ekki svar við hraða Ferrari.

Valtteri Bottas mun þurfa að taka að sér hluterk skósveins Hamilton líklega strax í næstu keppni í Singapúr eftir tvær vikur. Kimi Raikkonen er löngu farinn að sinna því hlutverki fyrir Vettel hjá Ferrari.

Daniel Ricciardo lék á alsoddi í keppninni á Ítalíu.Vísir/Getty
Ökumaður keppninnar

Daniel Ricciardo er ökumaður keppninnar að þessu sinni að mati blaðamanns. Hann ræsti 16. en endaði fjórði og hefði hugsanlega geta ógnað Vettel og stolið þriðja sætinu með smá heppni í farteskinu.

Ricciardo átti framúrakstur keppninnar þegar hann stakk sér fram fyrir Kimi Raikkonen á leiðinni inn í fyrstu beygju. Vel keyrt og að mati ofanritaðs einn besti framúrakstur ársins hingað til.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton vann á Monza

Lewis Hamilton á Mercedes vann aðra keppnina í röð í dag. Hann tók með því forystu í heimsmeistarakeppni ökumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×