Spilaði svíngróft rapplag fyrir háaldraða kirkjugesti Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. ágúst 2017 22:43 Sóknarbörnunum brá heldur betur í brún þegar XXXTentacion var spilaður á hæsta styrk í kirkjunni. Vice
Sextán ára drengur hefur verið ákærður eftir að hafa, ef marka má þarlenda miðla, truflað messu í úthverfi Toronto í Kanada með því að spila rapplag á hæsta styrk. Að sögn lögreglunnar í borginni hélt hann síma sínum upp að hljóðnema í St. Eugene Mazenod kirkjunni, sem stendur í vesturhluta Toronto, og spilað lagið Look At Me! með hinum umdeilda rappara XXXTentacion (borið fram eins og Extension). Fjölmenni var í kirkjunni og segir eitt sóknarbarnanna í samtali við fjölmiðla ytra að uppákoman sé algjörlega fordæmalaus í sögu sóknarinnar og mikið áfall fyrir samfélagið. Aðrir líta á málið sem hatursglæp og lýsa því hvernig hópur eldri kvenna hljóp grátandi úr kirkunni. „Það eina sem fólkið sem sótti athöfnina heyrði voru blótsyrði inni í þeirra allra helgasta rými,“ segir kona í samtali við the Brampton Guardian.Kirkjugestir segjast hafa séð tvo unga menn koma inn í kirkjuna um hliðarhurð skammt frá altarinu. Pólskur prestur hafi staðið í predikunarstólnum þegar drengurinn byrjaði að spila lagið í hátalarkerfi kirkjunnar. Kirkjugestir hringdu umsvifalaust á lögregluna sem kom og handtók hinn sextán ára gamla strák sem hafði verið meinuð útganga. Hann hefur nú verið ákærður fyrir uppátækið. Sem fyrr segir er XXXTentacion umdeildur rappari, hann hefur setið inni og fjöldi hefur höfðað mál gegn honum. Look At Me!, sem leikið var í kirkjunni, er lagið sem kom honum á kortið og er uppfullt af alls konar svívirðingum og dónaskap. Það má heyra hér að neðan.
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira