Fullyrt að Aron sé búinn að semja við Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2017 10:38 Aron í leik með Veszprém. vísir/getty
Aron Pálmarsson hefur samið við spænska stórveldið Barcelona. Þetta er fullyrt í frétt spænska blaðsins El Mundo Deportivo. Þar segir að Aron muni ganga í raðir Barcelona sumarið 2018 þegar samningur hans við ungverska meistaraliðið Veszprém rennur út. Hann gæti þó komið til Barcelona í sumar ef spænska félagið nær samkomulagi við Veszprém. Paris Saint-Germain og Kiel, gamla félagið hans Arons, vildu einnig fá íslenska landsliðsmanninn en hann valdi Barcelona. Þá vildi Veszprém halda Aroni í sínum röðum. Í frétt El Mundo Deportivo er því haldið fram að hluti af ástæðunni fyrir því að Aron valdi Barcelona sé að Ágústa Eva Erlendsdóttir, verðandi barnsmóðir Arons, vilji búa í þar í borg. Aron hóf feril sinn í atvinnumennsku með Kiel 2009. Eftir að hafa fimm sinnum orðið þýskur meistari, þrisvar sinnum bikarmeistari og unnið Meistaradeild Evrópu í tvígang gekk Aron í raðir Veszprém 2015. Aron hefur orðið tvöfaldur meistari bæði árin sín í Ungverjalandi. Þá vann hann SEHA-deildina, eins konar Meistaradeild Austur-Evrópu, með Veszprém í fyrra. Tveir aðrir íslenskir handboltamenn hafa spilað með Barcelona; Viggó Sigurðsson og Guðjón Valur Sigurðsson. Þá lék Eiður Smári Guðjohnsen með fótboltaliði félagsins.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira