Vilja styrkja starfsemi í Kína Kristinn Ingi Jónsson skrifar 2. júní 2017 09:00 Hannes Smárason var skipaður forstjóri WuXi NextCODE fyrr á árinu, en félagið er afsprengi Íslenskrar erfðagreiningar. vísir/heiða
Stjórnendur líftæknifélagsins WuXi NextCODE funda um þessar mundir með mögulegum fjárfestum, en heimildir Reuters herma að fjárfestingarsjóðirnir Hillhouse Capital og Sequoia Capital hafi sýnt áhuga á að fjárfesta í félaginu, sem Hannes Smárason stýrir. Vonast er til að fjármögnuninni ljúki í júlí. WuXi NextCODE lauk 75 milljóna dala fjármögnun í byrjun síðasta mánaðar. Sjóðirnir Temasek, sem er í eigu singapúrska ríkisins, og Yunfeng Capital, sem er í eigu Jacks Ma, stofnanda Alibaba, lögðu m.a. félaginu til 75 milljónir dala, um 7,4 milljarða króna. Þess má geta að Temasek er stór hluthafi í Alvogen, lyfjafyrirtæki Róberts Wessman. Sjóður á vegum Amgen, bandaríska lyfjarisans sem keypti Íslenska erfðagreiningu 2012, tók líka þátt í fjármögnuninni. Fjármögnuninni er ætlað að skjóta styrkari stoðum undir starfsemi félagsins á alþjóðavísu, sérstaklega í Kína, þar sem líftæknigeirinn vex hratt. Sjálfur hefur Hannes sagt að félagið geti orðið leiðandi í heiminum á sínu sviði. Hannes var ráðinn forstjóri WuXi NextCODE í mars. Áður hafði hann setið í yfirstjórn félagsins. Hann kom að stofnun NextCODE, dótturfélags Íslenskrar erfðagreiningar, 2013, en félagið seldi sjúkdómsgreiningar til lækna og sjúkrahúsa í Bandaríkjunum. Líftæknirisinn WuXi AppTec keypti NextCODE á 8,5 milljarða króna í byrjun árs 2015 og í kjölfarið sameinaðist félagið öðru líftæknifélagi, WuXi Genome Center, og til varð WuXi NextCODE. Félagið starfrækir skrifstofur í Sjanghaí, Bandaríkjunum og Reykjavík.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira