Breskur dýragarður rýmdur eftir „alvarlegt atvik“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. maí 2017 14:39 Hamerton dýragarðurinn.
Dýragarður í Cambridgeskíri á Englandi hefur verið rýmdur eftir „alvarlegt atvik,“ eins og lögreglan orðar það í samtali við breska fjölmiðla. Sjúkraflutningamenn bæta um betur í frétt BBC og segja það „mjög alvarlegt.“ Viðbragðsaðilar voru sendir að Hamerton-dýragarðinum í Steeple Gidding um klukkan 11:15 að staðartíma. Talsmaður dýragarðsins gat lítið gefið upp í samtali við Guardian að öðru leyti en að atvikið tengist ekki strokudýri. Garðinum hefur verið lokað og verður ekki opnaður aftur í dag en um 500 dýr eru til sýnis í Hamerton. Hávær orðrómur fór á flug á samfélagsmiðlum um að dýragarðinum hafi verið lokað eftir að tígrísdýr slapp úr gryfju sinni. „Við getum ekki gefið neinar nánari upplýsingar sem stendur. Við getum þó staðfest að lokunin tengist ekki lausu dýri og að almenningur er ekki í hættu,“ sagði lögreglan í Cambridge í samtali við fjölmiðla. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hamerton-dýragarðurinn ratar í fjölmiðla. Blettatígur slapp úr garðinum árið 2008 og fannst í íbúðahverfi skammt frá. Níu ára drengur gerði lögreglunni viðvart þegar hann sá til blettatígursins í bakgarði fjölskyldunnar.Fréttin verður uppfærð þegar málið skýrist.Helicopter video of Hamerton Zoo this evening after a "very serious incident". pic.twitter.com/U3dHu7vs5k— Ryan Clapham (@NewsReport365) May 29, 2017
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Rafmagnslaust í Mosfellsbæ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Fleiri fréttir Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Sjá meira