Umhverfið í öndvegi Sólveig Gísladóttir skrifar 18. maí 2017 13:00 "Mér fannst mikilvægt að skilja eftir eins lítið fótspor á jörðinni eftir fatalínu mína og ég gæti,“ segir Magna Rún. mynd/Anton Brink
Magna Rún Rúnarsdóttir útskrifast úr fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands í vor. Í útskriftarlínu sinni, sem hún sýndi í Hörpu, lagði hún áherslu á umhverfisvitund. Mér fannst mikilvægt að skilja eftir eins lítið fótspor á jörðinni eftir fatalínu mína og ég gæti. Ef það er eitthvað sem ég hef lært á síðustu þremur árum í skólanum er að iðnaðurinn í kringum fatahönnun er ekkert sérstaklega fagur og einn sá mest mengandi í heiminum, í rauninni annar í röðinni á eftir olíuiðnaðinum,“ segir Magna Rún sem ákvað því að vinna umhverfisvæna endurunna línu.Magna Rún að sýningu lokinni.„Ég óf marga litla búta úr niðurklipptum hvítum stuttermabolum sem ég fékk úr Rauða krossinum og bútana litaði ég svo með avókadósteini og hýði sem gefur fallegan bleikan tón. Einnig litaði ég gömul rúmföt með gulu laukhýði og reif svo niður í ræmur og óf í stórum vefstól. Svo litaði ég með indígólit, en hann er einn af fáum náttúrulegum bláum tónum sem er hægt að nálgast,“ lýsir Magna Rún. Hún segir heilmikla vinnu liggja að baki fatalínu sem þessari, sér í lagi þar sem hún ákvað að búa til liti og efni sjálf. „Sem betur fer fékk ég mikla hjálp frá fjölskyldu og vinum. Til að mynda voru móðir mín og systir í fullri vinnu við að vefa 100 búta úr stuttermabolum sem voru svo notaðir í bleika jakkann og buxurnar,“ segir hún glettin. Hönnunar- og framleiðsluferli útskriftarlínunnar gekk nokkuð jafnt og þétt fyrir sig þó hún viðurkenni að stressið hafi verið nokkuð. „En við erum mjög þéttur og góður hópur í bekknum og pössuðum upp á hvert annað. Ég gæti ekki hugsað mér að hafa verið án þeirra í þessu ferli, því þetta var samvinna þó svo við höfum öll verið að vinna í okkar eigin línu.“ Fyrirsæturnar á útskriftarsýningunni komu frá Eskimo og dóttir og bekkjarfélagarnir völdu í sameiningu þau módel sem þeim leist best á. „Kennarinn okkar, hún Kata, raðaði módelunum niður á lúkk en öll vorum við með þrjár til fjórar innkomur, svo það myndaðist mikill hasar í skiptingum baksviðs. Við völdum einnig förðun og hár í sameiningu og fengum til okkar Fríðu Maríu förðunarfræðing sem útfærði hugmyndir okkar og sá svo um förðunina á sýningardaginn ásamt sínu teymi.“ Magna Rún segir tískusýninguna hafa gengið vonum framar. „En það var smá hökt í aðalæfingunni sem var haldin klukkutíma fyrr. Þar festist til dæmis eitt módelið í skóm og varð seint í næstu innkomu,“ segir hún og brosir. Nemendur sáu ekki sýninguna sjálfa enda uppteknir við að klæða módelin baksviðs. „Það var samt ótrúleg spenna sem fór um mann þegar lagið byrjaði, en við vorum öll með okkar lag. Það var mikið spennufall eftir sýningu og í raun mjög skrýtið að þetta sé bara búið! Eftir 16-17 tíma vinnudaga síðastliðna mánuði getur maður loksins andað,“ segir Magna Rún sem ætlar að vinna í möppunni sinni (portfolio) í sumar. „Kannski fer ég eitthvert út í starfsnám eða framhaldsnám næsta haust, það er enn ekki komið í ljós.“mynd/Leifur Wilberg Orrasonmynd/Leifur Wilberg Orrasonmynd/Leifur Wilberg Orrasonmynd/Leifur Wilberg Orrasonmynd/Leifur Wilberg Orrasonmynd/Leifur Wilberg Orrason
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Þjóðarsálin í reiðhöllinni Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Fleiri fréttir Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Sjá meira