Einkaummæli blaðamanns á Twitter ekki efni siðanefndar Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 4. maí 2017 12:40 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Guðmundar, sagði Atla Má hafa farið mikinn í umfjöllun sinni um skjólstæðing sinn.
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur vísað frá kæru á hendur Atla Má Gylfasyni, blaðamanni á Stundinni, fyrir ummæli sem hann viðhafði á Twitter um Guðmund Spartakus Ómarsson. Telur kærandi að ummælin sem birt voru á Twitter „… hvernig væri nú að hjálpa til við að upplýsa mannshvarf í stað þess að standa í lögsóknum eins og aumingi?” feli í sér brot á siðareglum. Í kærunni segir lögmaður Guðmundar að Atli Már hafi farið mikinn í umfjöllun sinni um Guðmund í fjölmiðlum og muni þurfa að svara fyrir umfjöllun sína fyrir dómstólum. Kærunni var því vísað frá en vinnureglur siðanefndarinnar segja að sé óafgreiddu kærumáli fyrir siðanefnd skotið til dómstólar vísi nefndin málinu samstundis frá, hvaða stigi sem málið kann að vera innan siðanefndar. Þá kemst siðanefnd einnig að þeirri niðurstöðu að ummæli Atla Más tengist ekki starfi hans sem blaðamanns og séu því ekki innan lögsögu siðanefndar BÍ. „Þau eru ekki hluti af ritstjórnarstörfum hans heldur tjáning einstaklings á samskiptamiðli. Um Twitter hlýtur sama að gilda og Facebook; þar sem einstaklingar nýta sér tjáningarfrelsi sitt og ef færsla tengist ekki ritstjórnarstörfum þá eru slík ummæli ekki innan lögsögu siðanefndar BÍ,“ segir í úrskurði nefndarinnar. „Öðruvísi myndi hátta til ef viðkomandi Facebook-síða eða Twitter-reikningur væru sérstaklega beintengd við fjölmiðil og ummæli á slíkum vettvangi þá beintengd ritstjórnarstörfum.“
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira