Handbolti

Úrslitakeppnin hefst klukkan 17.00 á sunnudaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslandsmeistarar Hauka hefja úrslitakeppnina á móti Fram á sunnudaginn.
Íslandsmeistarar Hauka hefja úrslitakeppnina á móti Fram á sunnudaginn. Vísir/Anton
Deildarkeppni Olís-deildar karla í handbolta lauk í gær og það þarf ekki að bíða lengi eftir úrslitakeppninni sem hefst strax um næstu helgi.

Þrír fyrstu leikir átta liða úrslitanna verða á sunnudaginn, tveir klukkan 17.00 og einn klukkan 19.30. Daginn eftir hefst síðan fjórða og síðasta serían.

Handboltaáhugafólk getur náð tvíhöfða í Hafnarfirði á sunnudaginn. Leikur Hauka og Fram hefst klukkan 17.00 í Schenkerhöllinni á Ásvöllum og fólk hefur síðan nægan tíma til að drífa sig yfir í Kaplakrikann þar sem leikur FH og Gróttu hefst klukkan 19.30.

Fyrsti leikur ÍBV og Vals er í Vestmannaeyjum klukkan 17.00 á sunnudaginn og á mánudaginn klukkan 20.00 hefst sería Aftureldingar og Selfoss í Íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbænum.

Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki tryggir sér sæti í undanúrslitunum og þar sem þarf bara að vinna tvo leiki er mikil pressa á heimaliðunum í leik eitt.

Hér fyrir neðan má sjá allar tímasetningar leikjanna í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.

Í 8 liða úrslitum mætast:

FH (1. sæti) – Grótta (8. sæti)

ÍBV (2. sæti) – Valur (7. sæti)

Haukar (3. sæti) – Fram (6. sæti)

Afturelding (4. sæti) - Selfoss (5. sæti)



Leikir í átta liða úrslitum úrslitakeppni Olís-deildar karla

Leikur eitt


Sun. 9. apr. 2017    17:00    1    Schenkerhöllin     Haukar - Fram    

Sun. 9. apr. 2017    17:00    1    Vestmannaeyjar     ÍBV - Valur    

Sun. 9. apr. 2017    19:30    1    Kaplakriki     FH - Grótta    

Mán. 10. apr. 2017    20:00    1    Íþróttamiðstöðin Varmá    Afturelding - Selfoss    

Leikur tvö

Þri. 11. apr. 2017    19:30    1    Hertz höllin     Grótta - FH    

Þri. 11. apr. 2017    19:30    1    Framhús     Fram - Haukar    

Mið. 12. apr. 2017    19:30    1    Selfoss     Selfoss - Afturelding    

Mið. 12. apr. 2017    20:00    1    Valshöllin     Valur - ÍBV    

Oddaleikur (ef þarf)

Lau. 15. apr. 2017    16:00    1    Schenkerhöllin     Haukar - Fram    

Lau. 15. apr. 2017    16:00    1    Vestmannaeyjar     ÍBV - Valur    

Lau. 15. apr. 2017    16:00    1    Íþróttamiðstöðin Varmá    Afturelding - Selfoss    

Lau. 15. apr. 2017    16:00    1    Kaplakriki     FH - Grótta   




Fleiri fréttir

Sjá meira


×