Hratt ris hins hvíta Iverson Stefán Þór Hjartarson skrifar 6. apríl 2017 09:45 Post Malone skipti næstum yfir í rokkið enda lærði hann að spila á gítar í tölvuleiknum Guitar Hero. NORDICPHOTOS/AFP
Júlí 2015 – White Iverson skekur heiminn Það eru einungis tæp tvö ár síðan Post Malone, þá algjörlega óþekktur, setti myndband við lag sitt White Iverson á YouTube þar sem það halaði inn áhorfum og er með yfir 250 milljón spilanir í dag.Ágúst 2015 – Fær plötusamning eftir 10 mínútur Aðein mánuði eftir að Post Malone vakti athygli fyrir White Iverson var plötusamningur við Republic Records kominn í hús hjá drengnum. Republic Records er með slatta af stórum nöfnum á sínum snærum, en fyrirtækið er undirdeild Universal.Poppkóngurinn Justin Bieber er góðvinur og lærifaðir Post Malone.NORDICPHOTOS/GETTYMars 2016 – Blessaður af konungi poppsins Í mars 2016 tilkynnti poppgoðið Justin Bieber að Post Malone myndi ferðast með sér á Norður-Ameríkulegg Purpose-tónleikaferðalagsins. Justin og Post Malone eru víst góðir vinir, en Bieber er árinu eldri en Post Malone. Það sem var kannski helst að frétta af þessu ferðalagi var ljósmynd þar sem Post Malone virtist vera að kyrkja Justin en um fíflagang var víst að ræða.Maí 2016 – Lofað upp í ermina Mixteipið August 26th kom út í maí í fyrra – titill þess vísaði til útgáfudags fyrstu plötu Post Malone sem átti að koma út, nema hvað, 26. ágúst.Júní 2016 – Fyrsta sinn í sjónvarpi Post Malone kom fyrst fram í sjónvarpi sumarið 2016 þar sem hann flutti smellinn sinn Go Flex í þætti Jimmys Kimmel.Metro Boomin er meðal þeirra pródúsera sem hafa varðað veg Post Malone á topp poppísjakans.NORDICPHOTOS/GETTYJúní 2016 – Misskilningurinn mikli Í sama mánuði var það gefið í skyn að Post Malone ætti að vera í Freshmen-hefti rapptímaritsins XXL, en það þykir talsverður gæðastimpill. Blaðið gefur árlega út svokallaðan Freshmen-lista yfir þá ungu rappara sem talið er að muni verða næstu stórstjörnur rappheimsins. Hinsvegar varð ekkert úr því að Post Malone prýddi forsíðu þessa ágæta tímarits en það var vegna einhvers misskilnings á milli ritstjórnar XXL og útgáfufyrirtækis Post Malone sem hafði gefið það út að Post Malone ætlaði að setja hiphop-tónlist á hilluna og fókusera á einhvers konar rokk/poppferil frekar. Post Malone neitaði þessu og sagði að Stoney, væntanleg breiðskífa hans, yrði rappplata.Ágúst 2016 – Hvar er Stoney? 26. ágúst rennur upp en hvergi bólar á Stoney. Degi síðar biðst Post Malone afsökunar á töfinni og lofar því að platan komi út bráðlega.Desember 2016 – Stoney kemur loksins út Þremur mánuðum síðar rennur dagurinn loksins upp og Stoney lendir í hillum plötuverslana.Quavo kom fram í smellinum Congratulations sem hlaut platínumplötu í síðasta mánuði.NORDICPHOTOS/AFPMars 2017 – Congratulations fær platínuplötu Smellurinn af Stoney, Congratulations, fær platínuplötu í mars. Í laginu eru engir aukvisar með Post Malone en gestur er Quavo úr hljómsveitinni Migos og á tökkunum er Metro Boomin, súper-pródúserinn sem hefur til að mynda gert smelli með Drake, Future og fleirum.Júlí 2017 – Post Malone spilar í Hörpunni Í sumar kemur svo vafalaust langstærsta augnablikið á ferli Post Malone þegar hann stígur inn í sjálfa Hörpu okkar Íslendinga og telur í White Iverson fyrir æsta aðdáendur.
Tónlist Mest lesið Hefur ekki hugmynd um hvað tekur nú við Lífið Hækkandi sól, sumarfrí og Bríet á bossanum Lífið Bjarni og Katrín selja 350 milljóna króna einbýli í Garðabæ Lífið Fólk ofmeti sína eigin þekkingu á næringu Lífið Þurfum að vera tilbúin að deyja á hverjum degi Lífið Kennari hljóp til þegar Sushi læstist inni eftir skólaslit Lífið Myndaveisla: Eliza og Lilja Alfreðs í afmæli Karls Bretakonungs Lífið Annie Mist og Frederik nefna soninn Lífið Grínaðist með yfirlið Binna í Köben Lífið Greta Salóme og Elvar eiga von á sínu öðru barni Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Yo-Yo Ma kemur til landsins „Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Sjá meira