FBI segir ekkert styðja ásakanir Trumps Guðsteinn Bjarnason skrifar 21. mars 2017 07:00 Comey og Rogers á fundi leyniþjónustunefndarinnar. vísir/afp
James Comey, yfirmaður bandarísku alríkislögreglunnar FBI, segir að hvorki FBI né bandaríska dómsmálaráðuneytið hafi neinar upplýsingar sem geti staðfest ásakanir Donalds Trump forseta um að Barack Obama, forveri hans í embættinu, hafi látið hlera síma Trumps. Comey staðfesti enn fremur að forseti Bandaríkjanna hafi enga heimild til að fyrirskipa hleranir. Þetta sagði Comey í yfirheyrslum hjá leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Hann staðfesti einnig, í fyrsta sinn opinberlega, að hjá FBI stæði yfir rannsókn á því hvort einstaklingar á kosningaskrifstofum Trumps hefðu verið í tengslum við Rússland. Jafnframt væri rannsakað hvort lögbrot hefðu verið framin í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar á síðasta ári. Michael Rogers, yfirmaður Þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, var einnig í yfirheyrslu hjá sömu þingnefnd í gær. Hann sagðist þar sammála yfirlýsingum bresku leyniþjónustunnar um að það væri „algerlega fáránlegt“ og „tóm della“ að leyniþjónustan hefði tekið þátt í að hlera Trump.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Donald Trump Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira