Fagfólk um samfesting Ragnhildar Steinunnar: „Þetta kemur bara ekki vel út“ Nadine Guðrún Yaghi skrifar 13. mars 2017 20:00
Samfestingurinn sem sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir var í á laugardaginn í Söngvakeppni sjónvarpsins hefur vakið þó nokkra athygli en hann þykir ansi líkur samfestingi úr vorlínu tískuhúss Balmain. Samfestingurinn sást síðast á fyrirsætunni Gigi Hadid á tískupallinum í París í haust. Samfestingurinn sem Ragnhildur Steinunn klæddist var þó örlítið rauðari og beltið í öðrum stíl en Balmain samfestinginn er appelsínugulur með örlítið styttri ermum. Lektor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands hefur sagt að um augljósan hönnunarstuld sé að ræða.Ertu sammála því að þarna sé um hönnunarstuld að ræða?„Það lítur þannig út. Þetta er of líkt og væri of mikil tilviljun ef svo væri ekki þannig það er að minnsta kosti mjög erfitt að trúa því að svo sé ekki,“ segir Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands. „Þetta kemur bara ekki vel út og það er augljóst að það er ekki farið faglega að þessu. Það kemur kannski líka ekki vel út að segja að þarna hafi ekki verið neinn hönnuður. Ég meina afhverju fóru menn þá bara ekki í verslun og keyptu góða flík,“ segir Halla vísar í orð klæðskerans Elmu Bjarneyjar Guðmundsdóttur í Fréttablaðinu í dag en hún saumaði samfestinginn. Þar segir hún að engin sé hönnuðurinn á bak við flíkina. Hún hafi verið unnin með innblástri frá samfestingi Balmain. Þau hafi nákvæmlega vitað af því að þau væru að gera svipaða flík en efnið og beltið væri öðruvísi. „Mér finnst eins og við höfum heyrt þetta umræðu áður eiginlega á hverju einasta ári er þetta svona einhverskonar eftirleikur þessarar keppni. Ragnhildur Steinunn stóð sig með prýði og það er ekkert út á hennar framkomu að setja enda snýst þetta ekki um það. Mér finnst að út frá myndunum að dæma þá er um hönnunarstuld að ræða og það hefði til dæmis heyrst mjög mikið í fólki ef við hefðum verið með gervi Arne jacobsen svan stól á sviðinu. Þetta er sami hluturinn,“ segir Álfrún Pálsdóttir, ritstjóri Glamour um málið. Hún fagnar umræðunni og segja hana nauðsynlega til þess að íslensk fatahönnun komist á faglegt plan. Sjá má umfjöllun úr fréttum Stöðvar 2 í heild sinni í spilaranum hér að ofan en einnig var rætt við Lindu Björk Árnadóttur, fatahönnuð og lektor við Listaháskóla Íslands, í fréttatímanum.
Eurovision Tengdar fréttir Lektor í fatahönnun segir að um hönnunarstuld sé að ræða Samfestingurinn sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir klæddist á laugardaginn í Söngvakeppni sjónvarpsins hefur valdið uppþoti þar sem hann þykir ansi líkur samfestingi úr vorlínu tískuhúss Balmain. 13. mars 2017 09:30 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Stundum gott að fara öruggu leiðina Sturluð skvísulæti í stórafmæli Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Verður að geta hent sér í hnébeygju Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Sjá meira
Lektor í fatahönnun segir að um hönnunarstuld sé að ræða Samfestingurinn sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir klæddist á laugardaginn í Söngvakeppni sjónvarpsins hefur valdið uppþoti þar sem hann þykir ansi líkur samfestingi úr vorlínu tískuhúss Balmain. 13. mars 2017 09:30