Lögðu hald á 168 kíló af nashyrningahornum Samúel Karl Ólason skrifar 14. mars 2017 18:59 Tollverðir í Taílandi sýndu blaðamönnum í dag um 50 kíló af hornum. Vísir/EPA
Komið var í veg fyrir tvær umfangsmiklar smygltilraunir í Asíu í dag. Tollverðir á flugvellinum í Hanoi í Víetnam lögðu í dag hald á 118 kíló af nashyrningahornum sem reynt var að smygla inn í landið frá Kenía í tveimur ferðatöskum. Nashyrningar hafa átt undir högg að sækja á undanförnum árum og hefur þeim farið sífellt fækkandi vegna mikillar eftirspurnar á hornum, sem talin eru lækna hina ýmsu kvilla. Fyrr í dag lögðu tollverðir í Taílandi hald á 50 kíló af hornum sem reynt var að smygla til landsins frá Eþíópíu. Sérfræðingar segja að villtum nashyrningum hafi fækkað úr um hálfri milljón í upphafi síðustu aldar í um 29 þúsund. Gífurleg eftirspurn hefur ýtt undir mikinn veiðiþjófnað. Mest er eftirspurnin í Kína og Víetnam, þar sem margir telja ranglega að nashyrningahorn geti læknað krabbamein, dregið úr timburmönnum og margt fleira. Í síðustu viku brutust veiðiþjófar inn í dýragarð í Frakklandi og skutu hvítan nashyrning þrisvar sinnum í höfuðið og söguðu af honum hornið.AFP fréttaveitan segir að eitt kíló af hornum geti selst á allt að 60 þúsund dali. Það samsvarar um 6,7 milljónum króna. Heildarverðmæti hornanna í Víetnam gæti því verið allt að um 800 milljónum króna. Hornin í Taílandi hefði selst á minna en helming af því. Sala horna var bönnuð á heimsvísu árið 1977. Víetnam er þó þungamiðja smygls með horna, en þangað eru þau flutt að mestu frá Afríku. Þaðan eru hornin svo flutt víðar um Asíu.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Sjá meira