Alfreð sagt upp störfum | Sigurlaug og Berglind taka við Guðmundur Mairnó Ingvarsson skrifar 18. mars 2017 12:30 Alfreð Örn Finnsson. Vísir/Eyþór
Handknattleiksdeild Vals hefur sagt Alfreð Erni Finnssyni þjálfara félagsins í Olís-deild kvenna síðustu tvö árin upp störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Val. Sigurlaug Rúnarsdóttir og Berglind Íris Hansdóttir eru teknar við liðinu og munu stýra því út leiktíðina hið minnsta. Valur er í sjötta sæti deildarinnar í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni í vor. Liðið hefur aðeins unnið einn af sex síðustu leikjum sínum en steininn tók úr þegar liðið tapaði fyrir næst neðsta liði deildarinnar, Selfossi, fyrir viku síðan. Aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni og á Valur eftir að mæta þremur efstu liðum deildarinnar og því er við ramman reip að draga ætli liðið sér að komast í úrslitakeppnina. Alfreð tók við Val árið 2015 þegar hann kom heim frá Noregi en á síðustu leiktíð hafnaði Valur í fimmta sæti undir hans stjórn. Þrjú af átta úrvalsdeildarliðum kvenna hafa nú sagt upp þjálfurum sínum á leiktíðinni því áður hafði Fylkir sagt Haraldi Þorvarðarsyni upp störfum og Selfoss rak Sebastian Alexandersson.
Olís-deild kvenna Mest lesið Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Skera niður hjá stelpunum Enski boltinn Tuchel himinlifandi: „Dásamlegt að sjá leikmenn stolta að spila fyrir landið sitt“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira