Vara við mjög slæmu veðri Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. febrúar 2017 11:51 Veðurstofan spáir mjög slæmu veðri á morgun. Vísir/Ernir
Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem vakin er athygli á mjög slæmu veðri sem spáð er á morgun, föstudaginn 24. febrúar. Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að búast megi við að vindhraði nái víða 20 til 28 metrum á sekúndu á sunnan-og vestanverðu landinu eftir hádegi á morgun, ásamt mjög hvössum vindhviðum sem geta náð allt að 40 metrum á sekúndu. Þessu veðri fylgir talsverð úrkoma, það er fyrst snjókoma og svo slydda eða rigning. Viðbúið er því að skyggni verði víða slæmt og ferðaveður sums staðar mjög slæmt. „Á Hellisheiði fer að snjóa snemma morguns og má búast við lélegu skyggni þar strax í fyrramálið, en einnig er vakin athygli á því að búist er við að versta veðrið gangi yfir Reykjanesbrautina á milli kl. 14 og 17. Snýst í mun hægari sunnan- og suðvestanátt suðvestantil annað kvöld, með skúrum eða éljum. Veðrið gengur til norðausturs yfir land og hvessir mikið á Norður og Austurlandi um miðjan dag. Þar má búast við versta veðriðnu annað kvöld, suðaustan 20-28 m/s með vindhviðum jafnvel yfir 40 m/s til fjalla. Búast má við að veðrið gangi niður norðaustantil eftir miðnætti. Talsverði eða mikilli rigningu er spáð um tíma suðaustanlands seint á morgun,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar.
Veður Mest lesið Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Fleiri fréttir „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Sjá meira