Glamour

Frances Bean Cobain andlit Marc Jacobs

Ritstjórn skrifar
Marc Jacobs og Frances Bean Cobain.
Marc Jacobs og Frances Bean Cobain. Glamour/skjáskot
Nýjasta andlit Marc Jacobs er Frances Bean Cobain, einkadóttir Kurt Cobain heitins og söngkonunnar Courtney Love. Þetta er í fyrsta sinn sem Frances gerir eitthvað sem tengist tískuheiminum en í viðtali við Vogue þvertekur hún fyrir að vera orðin fyrirsæta. 

„Ég held að ég muni ekki vera fyrirsæta fyrir neinn anna aftur, þetta er 100 prósent fyrir utan minn þægindaramma. Ég hefði ekki gert þetta fyrir neinn annan en Marc.“

Þá segir Frances að hún sitji ekki fyrir nema hún hafi fulla trú á verkefninu og það hefði hún á þessari nýju línu Marc Jacobs. Eins og sjá má á Instagramfærslu Marc Jacobs, sem má sjá hér neðst í fréttinni, þá kynnist hann fyrst Frances þegar hún var tveggja ára og má segja að þau séu fjölskylduvinir. 






×