Guðbjörg og Brynjólfur ráðin til KORTA Samúel Karl Ólason skrifar 17. janúar 2017 10:40 Guðbjörg Stefánsdóttir og Brynjólfur Gunnarsson.
Fyrirtækið KORTA hefur ráðið þau Guðbjörgu Stefánsdóttur og Brynjólf Gunnarsson sem yfirmenn hjá fyrirtækinu. Þörf var á tveimur slíkum stöðum þar sem fyrirtækið hefur vaxið ört á síðustu misserum, samkvæmt tilkynningu. Þar segir að starfsfólki hafi fjölgað um um 60 prósent á ríflegu ári. Nú starfa á fimmta tug manns hjá fyrirtækinu. KORTA, Kortaþjónustan hf. var stofnuð árið 2002 og sinnir færsluhirðingu á greiðslukortum í posakerfum og á netinu fyrir íslensk og erlend fyrirtæki. Guðbjörg Stefánsdóttir hefur verið ráðin í starf rekstrar - og mannauðsstjóra KORTA. Hún er með B.ed í kennslu og Mastersgráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Guðbjörg er fyrrum framkvæmdastjóri Cintamani ásamt því að hafa víðtæka reynslu af mannauðsmálum og rekstrarráðgjöf fyrirtækja. Eiginmaður Guðbjargar er Eiríkur Jóhannsson og eiga þau tvo stráka. Brynjólfur Gunnarsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður Upplýsingatæknisviðs KORTA. Brynjólfur er kerfisfræðingur frá TVÍ, B.Sc í tölvunarfræði frá HR og MPM-Master of Project Management frá HÍ. Hann starfaði hjá Tryggingamiðstöðinni í rúm 20 ár sem kerfisfræðingur og forritari en einnig var hann forstöðumaður hugbúnaðargerðar. Brynjólfur var hjá Advania í tvö ár sem forstöðumaður Innri upplýsingatækni og hefur hann undanfarin tvö ár starfað sem framkvæmdastjóri Verkfæralagersins. Brynjólfur er giftur Ástu Bjarnadóttur vátryggingarráðgjafa og þau eiga þrjú börn .
Mest lesið Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Viðskipti erlent Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur Róbert Aron og Einar Örn taka við rekstri Kolaportsins Viðskipti innlent Þessi í vinnunni sem þykist vita allt og hefur alltaf rétt fyrir sér Atvinnulíf Vísar ásökunum um samráð á bug Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Róbert Aron og Einar Örn taka við rekstri Kolaportsins Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur