Kiel og PSG vilja bæði blanda sér í kapphlaupið um Aron Pálmarsson Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2017 18:30 Aron Pálmarsson í leik með Vezprem. Vísir/EPA
Samkvæmt heimildum íþróttadeildar 365 ætla þýska liðið Kiel og franska stórliðið Paris Saint Germain bæði að taka þátt í kapphlaupinu um Aron Pálmarsson. Framtíð íslenska landsliðsmannsins hefur verið í óvissu eftir að Aron Pálmarsson neitaði að mæta á æfingu hjá ungverska liðinu Vezprem á dögunum. Við það fór allt í bál og brand en forráðamenn ungverska liðsins tilkynntu í framhaldinu að Aron hefði samið við spænska stórliðið Barcelona árið 2018. Aroni var jafnframt hótað að Vezprem færi með málið fyrir dómstóla. Ungverska félagið hefur ekki náð samkomulagi við Barcelona um kaupverð en forráðamenn Vezprem vildu fá meiri pening en spænska liðið var tilbúið að borga til að leysa Aron undan samningi. Barcelona ætlaði bara að bíða þar til að samningur hans kláraðist. Aron á enn eftir eitt ár eftir af samningi sínum við ungverska félagið. Það eru hinsvegar fleiri stórlið handboltans farin að blanda sér í málið. Þýska liðið Kiel og franska stórliðið PSG eru sögð vera að skoða þann möguleika að kaupa upp samning Arons við Vesprem og borga sem sagt þá upphæð sem ungverska liðið sættir sig við til að losa leikmanninn undan samningnum. Aron lék áður með þýska liðinu og vann meðal annars marga titla undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Ef það tekst ekki er ljóst að málið verður vandleyst en engar líkur eru taldar á því að Barcelona borgi þá upphæð sem til þarf til að losa Aron frá Ungverjalandi. Þetta hefur hins vegar ekki fengist staðfest og ekki náðist í umboðsmann Arons Pálmarssonar í dag.
Handbolti Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fleiri fréttir „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Sjá meira