Miðakapphlaup fyrir stórleik gegn erkifjendum hefst á hádegi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. maí 2017 07:00 Íslendingar töpuðu fyrir Króatíu á útivelli í nóvember svo Gylfi Þór Sigurðsson og félagar eiga harma að hefna. NORDICPHOTOS/AFP
Búast má við að mikill handagangur verði í öskjunni er sala aðgöngumiða á leik íslenska fótboltalandsliðsins gegn Króatíu hefst á slaginu klukkan tólf í dag. Leikurinn, sem er liður í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Rússlandi á næsta ári, fer fram á Laugardalsvelli sunnudaginn 11. júní. Með sigri kæmist íslenska liðið upp að hlið Króata í efsta sæti síns riðils. Það sæti gefur beinan aðgang að úrslitakeppninni. Verð miða er frá þrjú þúsund krónum upp í sjö þúsund krónur. Þá er hægt að kaupa miða á barnaverði fyrir sextán ára og yngri með 50 prósenta afslætti. Fram kemur í tilkynningu Knattspyrnusambands Íslands að mest megi kaupa fjóra miða á hverja kennitölu. Sérstaklega er varað við því að brotið sé gegn banni við því að nota miðana í „markaðslegum tilgangi“ eins og til dæmis með því að gefa þá í leikjum á samfélagsmiðlum. „Verði einhver uppvís að slíku áskilur KSÍ sér rétt til að ógilda miðann,“ segir í tilkynningunni. Salan fer fram á midi.is. Ísland er nú í tólfta sæti á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins fyrir Evrópuþjóðir, einu sæti á eftir Króatíu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Sjá meira