Hungursneyð ríkir ekki lengur í Suður-Súdan Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. júní 2017 17:55 Móðir vigtar barn sitt í næringarmiðstöð í Panthau í Suður-Súdan í lok síðasta mánaðar. Vísir/AFP
Hungursneyð ríkir ekki lengur í Suður-Súdan eftir að henni var lýst yfir í febrúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar standa að. Ástandið er þó enn grafalvarlegt en fjöldi fólks er enn á barmi hungursneyðar. BBC greinir frá. Ástandið í Suður-Súdan hefur batnað til muna í kjölfar neyðaraðgerða þar í landi en í skýrslu Sameinuðu þjóðanna segir þó jafnframt að staðan sé enn alvarleg. Fjöldi þeirra sem eiga á hættu að svelta hefur enn fremur aukist nú í mánuðinum. Hungursneyðinni var lýst yfir í Unity-fylki í Suður-Súdan í febrúar síðastliðnum að því er kom fram í tilkynningu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Hungursneyðin var sú fyrsta sem lýst er yfir í heiminum í tæplega sex ár en hungursneyð var síðast lýst yfir í heiminum árið 2011 í Sómalíu. Vopnuð átök, lítil uppskera og gríðarleg hækkun á matarverði hefur meðal annars verið talið liggja að baki hungursneyðinni en 1,7 milljón manna stendur enn frammi fyrir alvarlegu stigi hungurs, einu stigi lægra en hungursneyð. Stephen O‘Brien, yfirmaður mannúðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna, segir að nú þurfi að stíga varlega niður fæti. „Þetta þýðir ekki að við höfum sloppið fyrir horn og komið í veg fyrir hungursneyð. Fleiri eru nú á barmi hungursneyðar vítt og breitt um Suður-Súdan en voru það í febrúar.“ Sameinuðu þjóðirnar segja heimsbyggðina nú standa frammi fyrir stærsta neyðarástandi síðan við lok Seinni heimsstyrjaldarinnar. Næstum 20 milljónir standa nú frammi fyrir hungursneyð í norðausturhluta Nígeríu, Sómalíu, Jemen og Suður-Súdan.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira