Þjóð í hlekkjum hugarfarsins Sigurjón Njarðarson skrifar 22. október 2017 20:18 Sumarið 1993 var ég þrettán ára og þættirnir „Þjóð í hlekkjum hugarfarsins“ voru sýndir í Ríkissjónvarpinu. Viðbrögðin í mínu nærumhverfi voru eftirminnileg. Til sveita tóku margir þessari þáttaröð sem beinni áras á sig og það sem hún stóð fyrir. Það er engu logið, að framsetning viðfangsefnisins var óhefluð hjá Baldri Hermannssyni. Fram til 1993 einkennist söguskoðun Íslendinga af upphafningu stórra manna, stórra hugmynda og stórra viðburða. Baldur var einn fyrsti fræðimaðurinn, sem náði máli, sem tók sér stöðu við hlið almennings. Þegar horft var undir yfirborðið var íslandsagan ekki alls kostar geðsleg. Hér húkti fólk um aldir í vosbúð og ömurð, um það er lítt deilt í dag. Það er fólki eins Baldri Hermannssyni að þakka að við getum talað og rætt um samfélagið okkar í gagnrýnu ljósi. Jón Sigurðsson var ekki bara frelsishetja og forseti hins íslenska bókmenntafélags. Hann var líka maður sem skildi konu eftir í festum í 12 ár, sem gekk svo nærri henni að lá við sturlun. Hann var háskóla-droppát, hann sótti sér ítrekað félagsskap sér miklu yngri manna, hann smitaðist af sárasótt. Hugmyndin um Jón Sigurðsson þoldi ekki alla skoðun. Hugmyndin um bændasamfélagið þoldi ekki skoðun. Íslenska bændasamfélagið var fullkomið dæmi um kerfi sem níðir sína þegna. Um leið og möguleikar til framfara sýndu sig, herti kerfið á. Vistarbandið og píningsdómur eru afbragsðdæmi. Um aldir voru bjargálnum íslensks almennings settar skorður. Alltaf undir þeim formerkjum að hugmyndina um íslenskt samfélag þyrfti að verja. Við værum í eðli okkar öðruvísi og jafnvel betri en annað fólk. Hugmyndin um íslensku „sérstöðuna“ varð til einhvers staðar í þessu ferli. Ekki það, hvert samfélag álítur sig sérstakt. Það eru engar fréttir, en um miðja síðustu öld gekk Evrópa í gegnum ægibál eyðileggingar beinlínis vegna hugmyndarinnar um „sérstakt“ og betra samfélag en önnur – ekki einu sinni, heldur tvisvar. Á sama tíma breyttist Ísland líka, bændur og hjú fóru „á mölina“ og skildu eftir ný tækifæri. Íslenska sérstaðan breyttist ekki. Við sem samfélag erum enn þá föst í hlekkjum hugarfars. Það er ekki lengur hugarfar stórbóndans, sem var aldrei stórbóndi. Það er ekki lengur hugarfar mannsins sem tignar moldina og harmar tómthúslífið. Íslendingum hefur vegnað afar vel í um 70 ár. Ástæður velgengninnar eru nokkrar, fæstar huglægar. Við erum samfélag sem nýtur óskaplegs auðs, hafið í kringum okkur er fullt af verðmætum fiski, við búum við gnægð orku og núna síðast síaukna ásókn fólks í að heimsækja okkur. Samt er það svo að okkur gengur bölvanlega að sópa í alveg í hornin: Það gengur illa að manna lágmarks þörf af hjúkrunarfræðingum, öryrkjar og aldraðir hafa ekki fylgt öðrum þegar kemur að lífskjörum, konur í þúsundavís njóta ekki efnalegs ávinnings af menntun sinni, sífellt erfiðara verður fyrir fólk að koma sér þaki yfir höfuðið. Við erum þjóð í hlekkjum hugarfarsins. Í áratugi höfum við búið við gjaldmiðil sem endurtekið veldur almenningi í landinu búsifjum. Mýtan hefur ávallt verið sú að það sé hluti af sjálfstæði okkar að reka eigin gjaldmiðil – íslensku krónuna. Að með krónunni tryggjum við sjálfstæðið okkar betur. Með sjálfstæðri mynt hefur enda ríkisstjórnum landsins verið fært í hendurnar tæki til að fela landlæga vanhæfni í efnahagsstjórnun. Þegar að verðmæti afurða minnkar, er gengið fellt. Íslenskur almenningur hefur megninu af líftíma krónunnar verið settar skorður við að nálgast erlendan gjaldeyri. síðasta tilraunin með frjálst flot krónunnar endaði með allsherjar vantrú almennings á ríkjandi þjóðskipulagi. Alræmdasta gjöf sjálfstæðrar krónu er vafalaust verðtryggingin. Nú er svo komið að varðstaðan um sjálfstæðan gjaldmiðil er farin að nálgast skopleik/harmleik. Báðir formenn Framsóknarflokkanna tala um að hægt sé að nálgast lægri vexti með einföldum einskiptis töfralausnum. Áður en vanhæfnin kemur fram , skal þó byrjað að krukka í lífeyristrygginga kerfið. Það verður sennilega ekki fyrr en eftir það sem gengið verður fellt aftur. Talað er um að banna verðtrygginguna án þess að fyrir því séu lögð nokkur haldbær rök. Að banna verðtryggingu án þess að endurskoða gjaldmiðilsmálin þýðir að valmöguleikum millitekjufólks til að fjármagna húsnæði sitt og atvinnurekstur fækkar enn frekar. Svona fyrir utan það að við erum með stjórnarskrárvarið samningsfrelsi í landinu. Verðtryggingin er birtingarmynd ójafnvægis gjaldmiðilsins. Stærstu flokkar landsins eru með enn óljósari og huglægari nálgun á gjaldmiðilsstefnuna, eða réttara sagt – enga. Fráfarandi forsætisráðherra sagði til dæmis viku fyrir kosningar: „Þessar kosningar snúast um skatta og ábyrga innri uppbyggingu. En þær snúast líka um Evrópusambandið og með vissum hætti sjálfsmynd okkar. Hvort við höfum trú á landi og þjóð eða ekki.“ Það er ekkert minna. Orðræða eins og sú sem fráfarandi forsætisráðherra sýnir er auðvitað ekkert minna en forheimskandi. Evrópusambandið er samstarf ótal ólíkra ríkja, sem hvert fyrir sig er þar eigin forsendum. Til þess að tryggja sínum þegnum fleiri valkosti og fleiri tækifæri. Evrópusambandið er ekki spurning um minna eða meira sjálfstæði. Eitt af grunnskilyrðum þess að ríki teljist vera ríki er eiginleikin að vera þess bær að ganga til milliríkjasamstarfs. Innganga í Evrópusambandið er ekki til ónýtingar fullveldisins, það er beiting þess. Það versta er að fráfarandi forsætisráðherra hlýtur að vita betur. Í stað þess að sýna sjálfstraust til þess að tala umbúðalaust um hlutina, er talað inn í hugarfarið – talað inn í hlekkina. Þetta er orðræða sem búið er að halda að íslenskum almenningi, ekki í áratugi- heldur aldir. Íslenskur almenningur hefur það gott, en við gætum haft það svo miklu betra. Íslensk velsæld er ekki til marks um neina hugræna yfirburði. Hún er til marks um að auðlindir okkar og tækifæri eru svo ríkulegar að enginn stjórnvöld, hversu svo vanhæf sem þau eru, geta klúðrað starfi sínu að því marki að fátækt verði hér landlæg aftur. Þegar kemur að efnahagsstjórn er margt sem við getum gert betur. En allar samræður um hvernig við högum opinberu fjármálaumhverfi verða að byrja á því að ræðum um sjálfan peninginn í vasanum okkar. Húsið verður að vera fokhelt áður en við byrjum á innvolsinu. Þeir stjórnmálaflokkar sem hundsa spurninguna um gjaldmiðilinn okkar eru að hundsa kjósendur líka. Það eru kjósendur sem borga þegar kemur í ljós að húsið heldur ekki vatni. Við erum þjóð í hlekkjum hugarfarsins – Við þurfum ekki að vera það. Höfundur skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sigurjón Njarðarson Mest lesið Hvernig vogar þú þér að gera grín að Möggu Stínu? Elliði Vignisson Skoðun Rúmfatalagerinn, ekki fyrir alla! Ragnar Gunnarsson Skoðun Hættið að þykjast standa með mannréttindum – hafnið nýju útlendingafrumvarpi Jón Sigurðsson Skoðun Ráðgátan um RÚV Helgi Brynjarsson Skoðun Er edrúlífið æðislegt? Jakob Smári Magnússon Skoðun Ísland þarf engan sérdíl Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Flækjustig í skjóli einföldunar Kolbrún Georgsdóttir Skoðun Kópavogsmódelið Ragnheiður Ósk Jensdóttir Skoðun Lausnir í leikskólamálum Kristín Thoroddsen Skoðun Hvetjandi refsing Reykjavíkurborgar Halla Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Drifkraftur bata – Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar Skoðun Lordinn lýgur! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Það er ekki hægt að þykjast með líf barnanna okkar Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Í örugga höfn! Örlygur Hnefill Örlygsson,Bergur Elías Ágústsson skrifar Skoðun Reykjavíkurmódelið er skref í rétta átt – fyrir börnin og starfsfólkið Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Varasjóður eða hefðbundið styrkjakerfi? Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Geðheilsa á tímum óvissu og áskorana María Heimisdóttir skrifar Skoðun Kópavogsmódelið Ragnheiður Ósk Jensdóttir skrifar Skoðun Villta vestur ólöglegra veðmálaauglýsinga á Íslandi Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Sterkari saman – geðheilsa er mannréttindi allra Halldóra Jónsdóttir,Halldóra Víðisdóttir,Júlíana Guðrún Þórðardóttir skrifar Skoðun Ísland þarf engan sérdíl Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Er edrúlífið æðislegt? Jakob Smári Magnússon skrifar Skoðun Rúmfatalagerinn, ekki fyrir alla! Ragnar Gunnarsson skrifar Skoðun Að gera ráð fyrir frelsi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Að þekkja sín takmörk Heiðar Guðjónsson skrifar Skoðun Gervigreind og dómgreind Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Fjárfesting í réttindum barna bætir fjárhag sveitarfélaga Marín Rós Eyjólfsdóttir skrifar Skoðun Hættið að þykjast standa með mannréttindum – hafnið nýju útlendingafrumvarpi Jón Sigurðsson skrifar Skoðun Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn – réttur til réttrar meðferðar Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Á að takmarka samfélagsmiðlanotkun barna? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig vogar þú þér að gera grín að Möggu Stínu? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvað er í gangi? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Lausnir í leikskólamálum Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Hjálpum fólki að eignast börn Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Ráðgátan um RÚV Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Hvetjandi refsing Reykjavíkurborgar Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flækjustig í skjóli einföldunar Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Lýst eftir afstöðu Viðreisnar til ríkisstyrkja Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Vegferð menntunar Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Almenningssamgöngur fyrir útvalda: Áskorun til stjórnar Strætó bs. og Reykjavíkurborgar Þorsteinn Árnason Sürmeli: skrifar Sjá meira
Hættið að þykjast standa með mannréttindum – hafnið nýju útlendingafrumvarpi Jón Sigurðsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurmódelið er skref í rétta átt – fyrir börnin og starfsfólkið Bozena Raczkowska skrifar
Skoðun Sterkari saman – geðheilsa er mannréttindi allra Halldóra Jónsdóttir,Halldóra Víðisdóttir,Júlíana Guðrún Þórðardóttir skrifar
Skoðun Hættið að þykjast standa með mannréttindum – hafnið nýju útlendingafrumvarpi Jón Sigurðsson skrifar
Skoðun Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn – réttur til réttrar meðferðar Pétur Maack Þorsteinsson skrifar
Skoðun Almenningssamgöngur fyrir útvalda: Áskorun til stjórnar Strætó bs. og Reykjavíkurborgar Þorsteinn Árnason Sürmeli: skrifar
Hættið að þykjast standa með mannréttindum – hafnið nýju útlendingafrumvarpi Jón Sigurðsson Skoðun