Kallar eftir umbótum á Sameinuðu þjóðunum Samúel Karl Ólason skrifar 18. september 2017 16:43 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, nýtti sína fyrstu ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum í að kalla eftir umbótum á stofnuninni. Hann sagði nauðsynlegt að draga úr kostnaði og skriffinnsku og skilgreina þyrfti markmið Sameinuðu þjóðanna betur. Þá hét forsetinn því að Bandaríkin myndu vinna með Sameinuðu þjóðunum að því að byggja upp frið í heiminum. Trump hvatti aðildarríkis Sameinuðu þjóðanna til að kalla einnig eftir breytingum og biðlaði hann einnig til Antonio Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Frá því að Trump tók við völdum hafa Sameinuðu þjóðirnar þegar skorið niður um rúmlega 500 milljónir dala, samkvæmt frétt BBC. Trump hrósaði stofnuninni fyrir þær aðgerðir. Guterres er þó hlynntur því að gera frekari breytingar á Sameinuðu þjóðunum og þá sérstaklega að draga úr skriffinnsku.„Einhver sem væri að reyna að grafa undan Sameinuðu þjóðunum hefði ekki getað komið með betri leið til þess en setja okkur þær reglur sem við höfum sjálf gert,“ sagði Guterres. Fundurinn í dag var að um mögulegar umbætur á Sameinuðu þjóðunum en Trump mun halda ræðu fyrir framan fulltrúa allra aðildarríkjanna á allsherjarþinginu á morgun.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Fleiri fréttir Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Sjá meira