Ást á ljóðum uppspretta tónsmíðanna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. júní 2017 09:30 Victoria, Gerður og Katalin hafa starfað saman í þrjú ár í tríóinu Aftanblik og einbeitt sér að íslenskum og erlendum sönglögum og aríum. Vísir/Ernir
Við flytjum íslensk sönglög um vorið, sumarið, vináttu og ást. Öll eftir sjálflærð tónskáld sem fóru eftir eigin tilfinningu þegar þau sömdu lög við ljóð.“ Þetta segir Gerður Bolladóttir sópransöngkona um tónleika tríósins Aftanbliks sem verða í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg í dag og hefjast klukkan 16. Auk hennar eru í Aftanbliki þær Katalin Lirincz, píanó- og organleikari frá Ungverjalandi og Victoria Tarevskaia, sellóleikari frá Moldavíu. Efnisskráin inniheldur sjö lög eftir Gerði sjálfa, hún kveðst því vera stressaðri en venjulega fyrir tónleika. „Þetta er stór stund,“ viðurkennir hún og lýsir þróun tónsmíðanna. „Ég starfa sem tónlistarkennari með ungum börnum. Þar kenni ég meðal annars á lítið, finnskt strengjahljóðfæri sem heitir kantele en fá lög voru til fyrir þetta hljóðfæri svo ég byrjaði að semja fyrir það, handa börnunum. Ég vil líka meina að ást mín á ljóðum hafi orðið til þess að ég fór að iðka tónsmíðar. Frá því ég var lítil stelpa hef ég alltaf haft gaman af ljóðum, ólst upp við að læra Skólaljóðin utan að, fór með þau upphátt og svo fór ég að syngja þau við lög sem mér komu í hug. Þannig held ég að tónsmíðar hafi blundað í mér en ég hef ekkert lært annað en söng.“ Gerður kveðst vera pínu feimin við að flagga eigin lögum og því hafi hún farið með þau til Báru Grímsdóttur tónskálds til að athuga hvort eitthvert vit væri í þeim. „Bára fór yfir lögin og gaf mér grænt ljós á þau. Þá ákvað ég að verða svolítið góð með mig og flytja þau á tónleikum. Spurningin var hvaða lög ég ætti að hafa með þeim en svo valdi ég tónskáld sem voru sjálflærð. Sigvaldi Kaldalóns er afkastamestur íslenskra tónskálda en ekki menntaður sem slíkur, heldur læknir.“ Eitt ljóðið sem Gerður bjó til lag við er eftir langömmu hennar, Þórunni Friðjónsdóttur frá Sandi. Það heitir Vorljóð og dagskráin hefst á því. „Konur af kynslóð ömmu voru yfirleitt skúffuskáld og eins var með hana,“ segir Gerður. „Lagið kom fljótt þegar ég fór að lesa Vorljóð.“ Nokkur ljóð Heiðreks Guðmundssonar frá Sandi urðu Gerði einnig tilefni til tónsmíða. Hún kveðst muna eftir honum. „Pabbi heimsótti Heiðrek oft á Akureyri og ég hélt upp á hann sem barn, hann var svo hógvær og greindur og listrænn á allan hátt. Það hafa ekki verið gerð mörg lög við ljóðin hans og mér fannst ég skulda honum það fyrir að koma af virðingu og elskusemi fram við börn. Svo til að tengja mig við nútímann samdi ég við ljóð eftir Kristján Hreinsson. Ljóðin hans kalla á lög enda er ég í samkeppni þar.“ Meðal laga á tónleikunum eru Mamma ætlar að sofna, Ég bið að heilsa, Friður á jörðu, Kvöldsöngur, Sólskríkjan, Ég leitaði blárra blóma og Svanurinn minn syngur. Meðal tónskálda sem flutt er eftir, auk Gerðar, eru Árni Thorsteinsson, Gylfi Þ. Gíslason, Ingi T. Lárusson, Ísólfur Pálsson, Jón Laxdal, Markús Kristjánsson og Sigvaldi Kaldalóns. Aðgangseyrir er 2.000 krónur en frítt fyrir yngri en 18 ára.
Menning Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira