„Þegar á reynir er til fullt af góðu fólki” Aron Ingi Guðmundsson skrifar 21. nóvember 2017 10:28 Helgi Guðsteinn Reynisson greindist með hvítblæði ALL (Acute Lymphocytic Leukemia) í apríl síðastliðnum. stöð 2 „
Ég var að hlusta á fréttirnar í vor og það var verið að fjalla um veikindi þegar fólk þarf að taka sig upp og flytja af heimili sínu. Á sama tíma frétti ég af þessum dreng og þetta stakk mig, að í öllu þessu rosalega velferðarríki okkar, sem ráðherrar og þingmenn keppast við að lofa hægri-vinstri og svo þegar á reynir þá er allt uppi á rönd. Það er nánast enginn stuðningur frá ríkinu, ansi ræfilslegur allavega.” Þetta segir Halldór Holt, Patreksfirðingur og fjölskylduvinur Helga Guðsteins Reynissonar, sjö ára drengs sem greindist með hvítblæði í apríl síðastliðnum. Þegar fyrstu einkenni gerðu vart við sig var Helgi Guðsteinn ítrekað sendur heim af heilsugæslunni á Akureyri, ranglega greindur með flensueinkenni, líkt og greint var frá í júní síðastliðnum.Helgi Guðsteinn var ranglega greindur með flensu, og ítrekað sendur heim af heilsugæslunni.vísirHalldór ætlar að halda styrktartónleika fyrir Helga Guðstein þann 6. desember næstkomandi í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði.Ræfilslegur stuðningur frá ríkinu Halldór segir að þó það verði ekki hundruð þúsunda eða milljónir sem safnast á tónleikunum, þá muni um hverja krónu. Þá sé það ekki síður samhugurinn sem gildi. „Það tóku allir rosalega vel í þetta verkefni, það er her manna sem ætlar að spila og syngja. Ég heyrði í fólki frá Ísafirði sem bað sérstaklega um að fá að koma og vera með. Ég hugsaði bara með mér að við hljótum að geta gert eitthvað,“ segir Halldór. „Og það hefur komið á daginn, eins og þegar ég hafði samband við fyrirtæki hér á svæðinu þá lá ekki á svörum frá þeim, peningaskúffur opnuðust og allir voru tilbúnir að leggja eitthvað af hendi. Það var til dæmis ekkert mál að fá Skjaldborgarbíó lánað undir viðburðinn og bæjarstjóri Vesturbyggðar var boðinn og búinn að vera kynnir þetta kvöld. Þegar á reynir þá er til fullt af góðu fólki,“ bætir hann við, en aðgangseyrir er 2000 krónur.Halldór Holt, er fjölskylduvinur Helga Guðsteins.Foreldragreiðslur hætta í desember Móðir Helga Guðsteins, Margrét Fanney Sigurðardóttir, segir ekki mikinn stuðning að fá frá ríkinu. Þau fái greiddar foreldragreiðslur og ferðakostnað, en foreldragreiðslurnar muni hætta næstkomandi desember. Þá fari eiginmaðurinn hennar aftur að vinna, en þau þurftu bæði að hætta að vinna eftir að Helgi Guðsteinn greindist með krabbamein. Auk þess þurftu þau að flytja frá Akureyri þar sem þeim var gert að búa ekki lengra en í 45 mínútna akstursfjarlægð frá Barnaspítala Hringsins í Reykjavík. Akranes hafi orðið fyrir valinu þar sem ekki sé möguleiki að finna íbúð til leigu á viðráðanlegu verði í Reykjavík. Aðspurð segir Margrét að aðlögunin á Akranesi hafi gengið ljómandi vel, það hafi þó ekki reynt mikið á það, þar sem þau fari ekki mikið úr húsi. Þau fari einungis út í búð og að sækja eldri drenginn í skóla, en þau eiga tvö eldri börn.Margrét Fanney og Helgi.„Við stefnum á að flytja aftur norður eftir þessa meðferð ef það er mögulegt. Þar leið okkur öllum vel. Stelpan okkar er í skóla á Laugum í Þingeyjarsýslu, við reynum að halda henni þar, þar líður henni vel og það er styttra frá Akureyri þangað heldur en héðan eins og gefur að skilja. Miðjubarnið okkar tekur þessu eins og við hin, en það var erfitt að byrja í 10. bekk í nýjum skóla. Það var ekki valkostur að vera áfram fyrir norðan, þetta risasjúkrahús þar er því miður ekki neitt, þar er ekki til staðar sú þjónusta sem við þurfum.“ Margrét segir að fjölskyldan sé óendanlega þakklát Halldóri fyrir að skipuleggja styrktartónleikana og fyrir alla þá hjálp sem Halldór hefur fengið er varðar tónleikana. Verst þyki henni að geta ekki verið viðstödd þá, en vill koma því til skila að þeir sem leggi hönd á plóg eigi allan heiður skilinn. Fjallað var um mál Helga Guðsteins á Stöð 2 á dögunum, en fréttina má sjá hér fyrir neðan. Þeim sem vilja styrkja Helga Guðstein og fjölskyldu hans, er bent á eftirfarandi reikningsupplýsingar:Rn: 0153-05-060278Kt: 111154-6199
Tengdar fréttir Drengur með hvítblæði ítrekað sendur heim og ranglega greindur með flensueinkenni Foreldrar Helga Guðsteins Reynissonar eru sárir út í kerfið og vilja að plagg með einkennum á krabbameini í börnum verði gert aðgengilegra. 22. júní 2017 19:32 Mest lesið Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Innlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Guðni snýr aftur í sagnfræðina Innlent Of snemmt að kenna bikblæðingum um Innlent Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Innlent Fleiri fréttir Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Kynntu á annað hundrað aðgerðir í loftslagsmálum Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Alvarlegt rútuslys og kona sem á níutíu þúsund servíettur Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Lýðheilsufræðingar segja aukið aðgengi að áfengi alvarlegt mál Elsta skip Samherja kveður Dalvík og heldur til Spánar Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Kostnaður ríkissjóðs vegna Grindavíkur um áttatíu milljarðar Leyfið gefið út í trássi við öryggi sjófarenda Sjá meira
Drengur með hvítblæði ítrekað sendur heim og ranglega greindur með flensueinkenni Foreldrar Helga Guðsteins Reynissonar eru sárir út í kerfið og vilja að plagg með einkennum á krabbameini í börnum verði gert aðgengilegra. 22. júní 2017 19:32