Tjörvi Þorgeirsson var hetja Hauka í kvöld er hann skoraði sigurmarkið gegn Aftureldingu undir lok leiksins.
Haukar lögði Aftureldingu með einu marki, 32-33.
Adam Baumruk var markahæstur í liði Hauka með sjö mörk og Birkir Benediktsson skoraði einnig sjö fyrir Aftureldingu.
Haukar voru í þriðja sæti fyrir leikinn og enda þar í deildinni en Afturelding endaði í fjórða sæti.
