Hagnaður Landsbankans hefur dregist saman Sæunn Gísladóttir skrifar 13. ágúst 2016 07:00 Rekstrartekjur og hagnaður Landsbankans drógust saman á fyrri helmingi ársins samanborið við árið áður. Fréttablaðið/Daníel Rúnarsson
Afkoma Landsbankans var jákvæð um 11,3 milljarða króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins 2016 samanborið við 12,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2015. Fram kemur í tilkynningu að hreinar vaxtatekjur voru 17,6 milljarðar króna og hækkuðu um níu prósent á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 3,9 milljörðum króna og hækkuðu um 14,7 prósent frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar hækkuðu um 0,4 milljarða króna á milli ára. Aðrar rekstrartekjur námu 4,4 milljörðum króna samanborið við 7,3 milljarða króna ári fyrr og skýrist lækkunin aðallega af minni hagnaði af hlutabréfum. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 8,6 prósent á ársgrundvelli samanborið við 10,4 prósent á sama tímabili 2015. Rekstrartekjur á fyrri helmingi ársins námu 28,2 milljörðum króna samanborið við 28,8 milljarða króna á sama tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður hækkaði um 1,6 prósent á milli ára. Launakostnaður hækkaði í takt við kjarasamninga en annar rekstrarkostnaður bankans lækkaði um 4,5 prósent á milli tímabila. Heildareignir bankans í lok júní voru um 1.110 milljarðar króna samanborið við 1.173 milljarða króna ári fyrr. Eigið fé bankans var 247,3 milljarðar króna í lok júní.Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira