Einar: Sóknarleikurinn stendur upp úr Ingvi Þór Sæmundsson í Valshöllinni skrifar 12. desember 2016 21:26 Einar var að vonum sáttur með langþráðan sigur. vísir/anton
Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, sá sína menn vinna langþráðan sigur á Val í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Garðbæinga frá 13. október. Leikurinn byrjaði þó ekki gæfulega fyrir Stjörnuna sem var 11-4 undir eftir 16 mínútur. „Manni hefur oft liðið betur en mér fannst góður andi í liðinu. Svo sýndum við gríðarlegan karakter að koma okkur aftur inn í leikinn og sigla svo fram úr. Mér fannst þessi frammistaða endurspegla vinnuna í aðdraganda leiksins,“ sagði Einar. Stjarnan náði góðu áhlaupi undir lok fyrri hálfleiks og hélt svo áfram á sömu braut í seinni hálfleiknum sem Garðbæingar unnu 18-12. „Menn voru staðráðnir í að halda áfram þar sem frá var horfið og spila nákvæmlega eins í vörn og sókn. Þetta skilaði okkur góðum úrslitum í dag,“ sagði Einar. Sveinbjörn Pétursson hefur verið besti leikmaður Stjörnunnar í vetur og hann var frábær í seinni hálfleiknum í kvöld. Einar segist þó hafa séð Sveinbjörn spila betur en hann gerði í kvöld. „Þetta var bara ágætis leikur hjá Sveinbirni að mínu mati. Vörnin var frábær í seinni hálfleik sem og Sveinbjörn,“ sagði Einar. „En í ljósi þess hvernig þetta er búið að vera, þá stendur sóknarleikurinn upp úr. Ég tala nú ekki um á móti sennilega sterkasta varnarliði deildarinnar. Það er virkilega öflugt að skora 31 mark á Val.“
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Stjarnan 26-31 | Langþráður sigur Garðbæinga Stjarnan vann fimm marka sigur, 26-31, á Val í Olís-deild karla í kvöld. 12. desember 2016 21:30 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Stjarnan 26-31 | Langþráður sigur Garðbæinga Stjarnan vann fimm marka sigur, 26-31, á Val í Olís-deild karla í kvöld. 12. desember 2016 21:30