Málnefnd ósátt við bankauppgjör á ensku Ingvar Haraldsson skrifar 25. febrúar 2016 07:00 Íslandsbanki birti uppgjör sitt á ensku í gær. Þetta gerir formaður Íslenskra málnefndar athugasemdir við. vísir/vilhelm „
Þróunin í landinu á öllum sviðum er til hins illa,“ segir Guðrún Kvaran, formaður Íslenskrar málnefndar. Hún er ósátt við að Íslandsbanki, sem nú er kominn í ríkiseigu, hafi í vikunni gefið út ársreikning á ensku. Guðrún telur að ríkið eigi að vera í fararbroddi í þessum málum. Málnefndin sendi fyrr í þessum mánuði umsögn um frumvarp að lögum um ársreikninga þar sem því var mótmælt að heimilt yrði að gefa út ársreikninga á íslensku eða ensku. „Við lítum svo á að það eigi að vera hægt að nota íslensku til alls af því það er í íslenskri málstefnu og líka í lögum um íslenska tungu frá 2011. Við litum því þannig á að ef það þarf endilega að hafa ársreikning á erlendu máli vegna samskipta við erlend fyrirtæki, þá þarf hann líka að vera á íslensku. Að það eigi alltaf að vera á íslensku en það megi þýða yfir á ensku ef nauðsyn krefur,“ segir Guðrún. „Við eigum að vera ánægð með að hafa þetta tungumál okkar. Það verða allir að hjálpast að við að viðhalda því. Það er búið að koma nánast daglega eitthvað sem við höfum þurft að mótmæla,“ segir Guðrún. Hún bendir þar á að nefndin hafi mótmælt að til standi að eftirnöfn en ekki eiginnöfn leikmanna íslenska karlalandsliðsliðsins í knattspyrnu verði aftan á treyjum þeirra á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar og að á skiltum á Keflavíkurflugvelli séu upplýsingar nú fyrst á ensku og svo á íslensku.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Sjá meira