Rekstur 27 stærstu sveitarfélaganna versnar milli ára Jóhann Óli Eiðsson skrifar 11. ágúst 2016 21:30 Veikleikamerkjum fjölgaði milli ára.Taka skal fram að veikleikamerkin eru alfarið mat Greiningardeildar Arion banka. Dæmi um veikleikamerki er ef íbúum fækkar milli ára og ef skuldahlutfall er yfir 150 prósent. mynd/greiningardeild arion
Almennt má segja að rekstur 27 stærstu sveitarfélaga landsins hafi harnað á síðasta ári þrátt fyrir batnandi skuldastöðu. Þetta er meðal niðurstaðna sem má finna í samantekt greiningardeildar Arion banka um akomu og fjárhagsstöðu sveitarfélaganna. Úrtak greiningardeildarinnar nær til sveitarfélaga sem telja 1.500 íbúa eða fleiri. Í greiningunni var stuðst við A- og B-hluta sveitarfélaganna. Stóran hluta erfiðleikanna má rekja til launahækkana í kjölfar nýrra kjarasamninga. Útsvarshlutfall sveitarfélaga er í mörgum tilfellum í lögbundnu hámarki og geta til að auka tekjur takmarkaðar. Tíu sveitarfélög skiluðu tapi á rekstrarárinu 2015 samanborið við fjögur árið á undan. Heilt yfir skiluðu þau hagnaði en sé litið til vegins meðaltals var um taprekstur að ræða. Munar þar mestu um fimm milljarða halla Reykjavíkurborgar. Samkvæmt lögum ber sveitarfélögum að halda heildarskuldum og skuldbindingum undir 150 prósentum af reglulegum tekjum. Sem stendur er skuldastaða sveitarfélaganna nú að vegnu meðaltali í 117,8 prósentum samanborið við 120,6 prósent árið áður. Skuldaviðmiðið lækkar hjá öllum sveitarfélögunum nema tveimur.
Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Sjá meira