Rekstrargrundvöllur ekki tryggður samkvæmt aðalstjórn SÁÁ nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 2. september 2016 11:38 Um tvö þúsund innlagnir eru árlega á sjúkrahúsinu Vogi. VISIR/HEIÐA
Aðalstjórn SÁÁ lýsir þungum áhyggjum af erfiðum samskiptum samtakanna við ríkisvaldið og ekki síst þeim trúnaðarbresti sem orðið hefur í samskiptum SÁÁ við Sjúkratryggingar Íslands. Þetta kemur fram í ályktun aðalstjórnar samtakanna. Samkvæmt ályktuninni hafa samskipti samtakanna við ríkisvaldið torveldað þeim að skipuleggja rekstur sinn til langs tíma en til að mynda eru þjónustusamningar um rekstur Sjúkrahússins Vogs aðeins gerðir til eins árs í senn. Að sama skapi hafa engir samningar verið í gildi um rekstur göngudeilda SÁÁ um tæplega tveggja ára skeið. „Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki greitt reikninga samtakanna vegna þeirrar þjónustu en bjóðast þess í stað til að greiða fjárhæð sem er í engu samræmi við tilkostnað og forsendur starfseminnar. Engu að síður hafa samtökin boðið óskerta göngudeildarþjónustu, sem hefur verið kostuð með sjálfsaflafé samtakanna. Það hefur verið gert í trausti þess að fá mætti ráðherra til að skerast í leikinn, tryggja rekstrargrundvöll til framtíðar og standa vörð um lögbundinn rétt sjúklinga samtakanna til heilbrigðisþjónustu,“ segir í ályktuninni. Aðalstjórn SÁÁ lýsir jafnframt yfir óánægju með framgöngu forstjóra Sjúkratrygginga Íslands sem hún telur hafa miðlað röngum upplýsingum til heilbrigðisráðherra um málefni og fjárhag samtakanna. Stjórnin segir forstjóra Sjúkratrygginga Íslands hafa fullyrt að hagnaður væri af sjúkraþjónustu SÁÁ en að sögn samtakanna á sú fullyrðing ekki við rök að styðjast. SÁÁ lýsir fullri ábyrgð á hendur heilbrigðisráðherra og Alþingi að bregðast við og grípa til ráðstafanna til þess að tryggja rekstrargrundvöll samtakanna.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira