FME sektar RÚV um 800 þúsund Sæunn Gísladóttir skrifar 22. mars 2016 15:48 Fjármálaeftirlitið hefur sektað Ríkisútvarpið um 800 þúsund krónur vegna brots RÚV á lögum um verðbréfaviðskipti. Vísir/Vilhelm
Fjármálaeftirlitið hefur sektað Ríkisútvarpið um 800 þúsund krónur vegna brots RÚV á lögum um verðbréfaviðskipti, með því að hafa ekki staðið skil á listum yfir fruminnherja og aðila fjárhagslega tengda fruminnherjum með fullnægjandi hætti á réttum tíma. Samkomulagið felur það í sér að RÚV fallist á að greiða sektina auk þess að staðfesta að hafa upplýst að fullu um málsatvik sem samkomulagið varðar. Málsatviki voru þau að RÚV var útgefandi skuldabréfaflokks sem skráður er í Kauphöll. RÚV skilaði lista yfir fruminnherja og lista yfir aðila fjárhagslega tengda fruminnherjum hinn 4. maí 2015. Regluverði var í byrjun nóvember send áminning að liðinn væri sá frestur sem útgefandi hefur til að skila uppfærðum lista yfir fruminnherja og/eða fjárhagslega tengda aðila. Með áminningunni beindi Fjármálaeftirlitið þeim tilmælum til RÚV að skila umræddum listum innan sjö daga. Að frestinum liðnum hafði hvorki lista yfir fuminnherja né lista yfir fjárhagslega tengda aðila verið skilað. Hinn 12. nóvember 2015 var send ítrekun. Þann 22. desember sendi RÚV svo FME bréf þar sem kom fram að innherjalistum hefði ekki skilað vegna mannlegra mistaka og bréfinu fylgdi uppfærður listi. RÚV óskaði svo eftir að ljúka málinu með sátt. Þann 18. febrúar 2016 gerðu svo FME og RÚV með sér samkomulagið til að ljúka með sátt málinu. Hér má lesa samkomulagið í heild sinni.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira