Rekstur Nóatúns settur í sérstakt félag Ingvar Haraldsson skrifar 30. mars 2016 11:00 Í Austurveri er eina Nóatúnsverslunin sem eftir stendur. fréttablaðið/gva
Festi, sem á verslanir Krónunnar, Kjarvals og Nóatúns, hefur skipt rekstri þeirra upp í tvö félög. Krónan og Kjarval verða áfram reknar í félaginu Kaupási ehf. en Nóatún verður rekið í sérstöku félagi, Nóatúni ehf. „Það er verið að aðskilja reksturinn þannig að Krónan verði rekin sér og Nóatún sér til að einfalda fyrirkomulagið,“ segir Jón Björnsson, forstjóri Kaupáss og Festa. „Þetta er hluti af því sem við byrjuðum á í fyrra. Þá lokuðum við fjórum Nóatúnsbúðum og opnuðum Krónubúðir í þremur þeirra. Við höfum svo haldið áfram að reka eina Nóatúnsverslun í Austurveri. Við höfum aðeins breytt starfsemi þeirrar búðar og gert hana sjálfstæðari þannig að fólkið sem stjórnar henni er á gólfinu,“ segir Jón. Þar sem Nóatún sé ekki lengur keðja líkt og Krónan hafi þótt þægilegra að setja rekstur Nóatúns í sérfélag. Jón segir að ekki standi til að gera breytingar á eignarhaldi Nóatúns samhliða stofnun hins nýja félags. Festi rekur einnig verslanir Intersport og ELKO auk vöruhússins Bakka. Stærsti hluthafi Festa er SÍA II, sjóður í rekstri Stefnis, með 27 prósenta hlut. Hluthafar sjóðsins eru lífeyrissjóðir, fjármálafyrirtæki og fagfjárfestar. Þar að auki eiga lífeyrissjóðir 31 prósents hlut í Festi, tryggingafélög og sjóðir eiga 15 prósent og einkafjárfestar eiga um 26 prósent.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent